Kemur þetta fram í tilkynningu en þar segir einnig að Dagrún starfi sem verkefnastjóri þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar sinni hún skrifstofustjórn, rekstri, starfsmannamálum og umbótastarfi.
Þá er einnig sagt frá því að hún hafi áður starfað hjá Barnavernd Reykjavíkur og öðlast þar reynslu af opinberri stjórnsýslu, málastjórn og samstarfi við fjölbreytta hagaðila. Auk þess hafi Dagrún reynslu af rekstri tjaldsvæðis, veitingastjórn, tónlistarkennslu barna og leikskólastarfi sem og vinnu með fólki með geðrænan vanda, fíknivanda og umönnun aldraðra.
Dagrún lauk meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2016 og BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2014. Hún hefur jafnframt lokið námi í mannauðsstjórnun og bókhaldi, auk þess að vera menntaður sjúkraliði er fram kemur í tilkynningunni.
„Sveitarstjórn býður Dagrúnu velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins á komandi árum,“ segir einnig í tilkynningunni.
Eftirtaldir aðilar sóttu um stöðuna:
| Alaa Moftady Mekky Deif | Lögfræðingur |
| Árdís Rut H. Einarsdóttir | Öryggisvörður |
| Dagrún Fanný Liljarsdóttir | Verkefnastjóri |
| Einar Kristján Jónsson | Frv. sveitarstjóri |
| Hannes Lúðvíksson | Ritari |
| Hilmar Vilberg Gylfason | Sérfræðingur |
| Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir | Stjórnendaþjálfi |
| Jóhanna Helga Marteinsdóttir | Frv. framkvæmdastjóri |
| Magnea Marinósdóttir | Framkvæmdastjóri |
| Maríanna Hugrún Helgadóttir | Frv. framkvæmdastjóri |
| Óskar Þór Ármannsson | Sérfræðingur |
| Ragna Berg Gunnarsdóttir | Aðstoðarskólastjóri |
| Rögnvaldur Ólafsson | Ótilgreint |
| Sigurbjörn Rafn Úlfarsson | Framkvæmdastjóri |
| Þórdís Yngvadóttir | Teymisstjóri |