Kona sem hefur verið dagmóðir í fjörutíu ár segir að starfið verði bara skemmtilegra með árunum. Hún hefur annast um þrjú hundruð börn á starfsævinni, sem er þó hvergi nærri lokið.
1986 var árið sem Ísland tók í fyrsta sinn þátt í Eurovision, Reagan og Gorbatsjev hittust í Höfða, Stöð 2 hóf sjónvarpsútsendingar og haldið var upp á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. 1986 var líka árið sem Snjólaug Óskarsdóttir byrjaði að vinna sem dagmamma. Í dag fagnar hún 40 ára starfsafmæli.
Við heimsóttum Snjólaugu á þessum tímamótum. Eins og flesta daga átti hún í fullu fangi við að sinna börnum, í þetta sinn þremur litlum drengjum, þeim Óskari Breka, Magnúsi Elvari og Adríel Mána.
Á starfsævinni hefur Snjólaug annast samtals um 300 börn. „Elstu börnin eru orðin 42 ára.“
Og sum hafa komið aftur með sín eigin börn. „Ég er tvisvar búin að vera hérna amma, í starfinu,“ segir Snjólaug.
Hún segir að starfið verði bara skemmtilegra með árunum. „Mér finnst þetta æðislegt. Ég veit ekki hvort ég tími að hætta þegar ég verð 67,“ segir Snjólaug. „Ég er 64 núna þannig að ég hef þrjú ár til að hugsa það. En ef ég er hress þá held ég bara áfram.“