Samkvæmt málaskrá embættis landlæknis bárust embættinu þrjár ábendingar sem beindust að tveimur einstaklingum sem notuðu starfsheiti sálfræðings án þess að hafa fengið útgefið starfsleyfi sem slíkur árið 2025.
Þetta kemur fram í svari embættis landlæknis við fyrirspurn fréttastofu.
Í þeim tilvikum hafði embættið samband við ábyrgðaraðila viðkomandi fyrirtækis og fór fram á að umræddar upplýsingar yrðu fjarlægðar. Farið var að beiðni embættisins þar um.
Afhenda ávana- og fíknilyf
Embættið kannast við mál þar sem sálfræðingar hafa afhent lyf sem ekki var heimilt að afhenda sjúklingi, bæði sílósíbín og ávana- og fíknilyf. Þau séu þó ekki mörg.
Málin voru tekin til meðferðar á grundvelli 13. greinar laga um eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum.
Samkvæmt þeim getur landlæknir krafist þess að heilbrigðisstarfsmaður gangist undir rannsókn sérfræðinga til að meta hvort hann sé hæfur til að gegna starfi sínu eða hvort viðkomandi sé undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna við störf sín.
Getur varðað allt að þriggja ára fangelsi
Í svari embættisins segir að því berist reglulega ábendingar um einstaklinga sem ekki hafa starfsleyfi heilbrigðisstarfsmanns sem ýmist nota lögverndað heiti heilbrigðisstarfsmanns eða veita meðferð sem eingöngu heilbrigðisstarfsmönnum er heimilt að veita.
Þar segir að eftirlit embættisins takmarkist aftur á móti við heilbrigðisstarfsmenn. Embættið geti því eingöngu beitt eftirlitsúrræðum gagnvart heilbrigðisstarfsmönnum sem hafa starfsleyfi frá Landlækni.
Embættið bregðist því ýmist við tilkynningum um óheimila notkun starfsheitis eða veitingu heilbrigðisþjónustu með því að skora á viðkomandi að láta af háttseminni án tafar eða með því að tilkynna brotin til lögreglu. Það velti á alvarleika hvers máls hvor leiðin sé farin.
Brot gegn ákvæðum laga um heilbrigðisstarfsmenn geta varðað sektum eða fangelsi allt að þremur árum.