Albanskur ríkisborgari var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Refsing hans er skilorðsbundinn.
Maðurinn var staðinn að kannabisræktun í húsi í Reykhólahreppi. Hann var tekinn með 260 kannabisplöntur þegar lögreglan gerði húsleit hjá honum.
Maðurinn játaði sök. Hann var handtekinn 10. ágúst og sætti gæsluvarðhaldi frá 11. ágúst þar til dómur var kveðinn upp í gær.