Colas Ísland hefur tekið í notkun nýja og sérhannaða rannsóknarstofu sem er talin sú fullkomnasta sinnar tegundar á Íslandi. Rannsóknarstofan er búin bestu fáanlegu tækjum til gæðaprófana, rannsókna og þróunar á malbiki, bindiefnum og steinefnum. Opnun rannsóknarstofunnar markar mikilvæg tímamót í íslenskri vega- og mannvirkjagerð, eins og segir í fréttatilkynningu.
Colas opnar nýja rannsóknarstofu á sviði malbiks og bindiefna