Poppstjarnan Britney Spears birtist nýverið á mynd með einum eftirsóttasta hárgreiðslumanni Hollywood, Chris Appleton, sem hefur séð um hár stórstjarna á borð við Kim Kardashian og Jennifer Lopez.
Í færslu sinni sagðist Chris hafa alist upp við tónlist Britney og aldrei ímyndað sér að einn daginn myndi hann fá að eiga við hárið hennar. Hann lét einnig fylgja að hún væri ein af yndislegustu manneskjum sem hann hefði kynnst, en það nefna allir það sem hafa verið í návist Britney. Að hún sé svo ljúf.
Myndin fór auðvitað strax í mikla dreifingu en hár Britney hefur verið mikið til umræðu í langan tíma vegna þess hve illa hún hefur haldið því við. Þá er enginn betri en Chris í nákvæmlega þetta make-over.
Chris kemur frá Bretlandi og hefur byggt upp gríðarlega farsælan feril en hann byrjaði með báðar hendur tómar. Núna er hann talinn meðal eftirsóttustu hárgreiðslumanna skemmtanaiðnaðarins og milljónir fylgjast með vinnu hans á samfélagsmiðlum.
Stjörnufréttir Evu Ruzu eru í samvinnu við Extra og Sjónvarp Símans!