Andy Burnham hefur tekið við embætti leiðtoga breska Verkamannaflokksins. Hann tekur við forsætisráðherraembættinu á mánudag.
Burnham tekur við af Keir Starmer, sem í júní tilkynnti að hann hygðist láta af embætti. Starmer er forsætisráðherra þar til hann gengur á fund Karls konungs á mánudag og biðst lausnar. Þá fer Burnham í konungshöllina þar sem konungur felur honum umboð til að mynda nýja ríkisstjórn.
Leið Burnhams að leiðtogasætinu hefur ekki verið greið. Hann lenti í fjórða sæti í leiðtogakjöri 2010 og tapaði fyrir Jeremy Corbyn 2015. Tveimur árum síðar yfirgaf hann þingið til að verða borgarstjóri í Manchester. Hann varð því að tryggja sér þingsæti að nýju til að geta sóst eftir embætti forsætisráðherra. Framkvæmdastjórn flokksins, undir stjórn Starmers, stöðvaði fyrstu tilraun Burnhams til að komast aftur á þing. Honum tókst loks ætlunarverkið þegar hann sigraði í aukakosningum í Makerfield.
Eftir það tryggði hann sér víðtækan stuðning á fjórða hundrað þingmanna flokksins og fjölda verkalýðsfélaga sem gerði að verkum að enginn gat boðið sig fram gegn honum.
Búist er við að ný ríkisstjórn Burnhams leggi áherslu á að efla hagvöxt um allt Bretland, endurreisa breskan iðnað og færa aukin völd frá London til sveitarfélaga og landshluta. Það er jafnframt yfirlýst markmið hans að draga úr ójöfnuði í Bretlandi og auka efnahagslega uppbyggingu um allt land.