Einn var fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Hellisheiði í kvöld. Heiðin var lokuð í báðar áttir í nokkrar klukkustundir en búið er að opna fyrir umferð. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir tildrög slyssins ókunn. Stuttu eftir slysið varð þriggja bíla árekstur á sama vegkafla en slys voru minniháttar.
Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang slyssins. Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Magnús segir að slysið hafi orðið um tíuleytið í kvöld og var einn fluttur alvarlega slasaður til aðhlynningar á sjúkrahús. Heiðin var lokuð í nokkrar klukkustundir á meðan unnið var að því að tryggja vettvang.
Í Facebook-tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi eru vegfarendur beðnir um að sýna ýtrustu varúð í hálkunni.
Hægt er að fylgjast með færð og lokun vega á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is.
Fréttin var uppfærð eftir að búið var að opna fyrir umferð um Hellisheiði að nýju.