Nýnemar í framhaldsskóla virðast yfirleitt ekki búa yfir þeirri þekkingu í stærðfræði sem þeir eiga að gera samkvæmt námskrá að sögn Vigdísar Guðjónsdóttur, fagstjóra stærðfræðideildar Verzlunarskóla Íslands.
„Ég veit ekki af hverju þetta er og ætla ekki að gefa mér það heldur,“ segir hún í samtali við mbl.is og tekur fram að Verzlunarskólinn fái þó yfirleitt til sín sterka nemendur.
Engu að síður þurfi að efla stærðfrðinám í grunnskólum.
Ný könnun mennta- og barnamálaráðuneytisins sýnir að enginn íslenskur framhaldsskólakennari í stærðfræði, sem svaraði könnuninni, metur stöðu nýnema mjög góða og 62 prósent meta hana frekar eða mjög veika.
Breiðari nemendahópur
Kristján Einarsson, fagstjóri stærðfræðideildar Menntaskólans í Hamrahlíð, segir nemendahópana sem koma inn í skólann breiðari en áður.
„Það eru náttúrulega ennþá til nemendur sem eru með hlutina á hreinu en stóri munurinn er að mínu mati hversu stórt hlutfall nemenda fer í framhaldsskóla miðað við það sem var áður,“ segir hann.
Hann segir skólann hafa brugðist við fjölbreyttari hóp með ýmsum hætti, eins og til dæmis undirbúningsáföngum.
Mæta verr undirbúnir í framhaldsskóla og háskóla
Einn stærðfræðikennari sem mbl.is hafði samband við var ómyrkur í máli og sagði stöðu nýnema verri nú en áður.
„Nemendur eru að mæta verr undirbúnir í framhaldsskólana og í háskólana sem er bein afleiðing af því,“ segir kennarinn sem vildi ekki láta nafns síns getið.
„Ég veit ekki alveg hvað maður á að gera í þessu. Ég hef fengið nemendur sem spyrja mig hvað þetta skrýtna V-merki er og benda á kvaðratrótartáknið,“ bætir hann við.
Skóli án aðgreiningar sé ekki að virka
Vandinn sé margþættur en erfitt sé að kenna grunnskólakennurum um stöðu mála.
„Ég held að skóli án aðgreiningar sé ekki að virka. Við þurfum aðgreiningu að einhverju leyti því við eigum ekki að miða alltaf við minnsta samnefnara,“ segir hann.
„Ef það er alltaf miðað við slakasta nemandann í bekknum, sem er það sem skóli án aðgreiningar virðist krefja mann um, þá kemst maður aldrei lengra en aftasti hesturinn.“
Hann segir að mikill tími fari í að kenna nemendum færni sem þeir eiga þegar að búa yfir eftir útskrift úr grunnskóla.