Eldurinn á bar í Bangkok, höfuðborg Taílands, sem varð að minnsta kosti 27 manns að bana, breiddist hratt út.
Vitni lýsa mikilli skelfingu meðal gesta á barnum og veitingastaðnum Rong Beer Na Lat Phrao. Fólk hljóp æpandi út og föt sumra þeirra loguðu. Maður sem var í hljómsveitinni sem var að spila þegar eldurinn kom upp sagði að slokknað hefði á ljósum og reykur komið frá rafmagnstöflu nærri þeim. Þegar hann skreið að útganginum hafi heyrst sprenging og hann hafi fundið hitavegg skella á hnakkanum á sér. Tveir úr hljómsveitinni fórust í brunanum.
Myndskeiðið hér að neðan, tekið af sjónarvotti, sýnir vel hversu mikill kraftur var í eldinum.
Myndir innan úr brunnum barnum sýna að þar er allt í rúst, bæði innanstokksmunir og hljóðfæri.
Flest þeirra sem létust voru á salernum staðarins þar sem þau virðast hafa leitað skjóls frá eldinum. Auk hinna látnu slösuðust 73 í brunanum. 41 var lagður inn á spítala og eru 25 þeirra á gjörgæslu. Flestir þeirra sem létust dóu úr reykeitrun.
Eldsupptök hugsanlega í rafmagni
Engin staðfesting liggur fyrir um eldsupptök. Kitrat Panphet ríkislögreglustjóri segir að enn hafi ekki verið hægt að ræða við eiganda barsins, þar sem hann liggur nú á gjörgæsludeild eftir brunann. Eitt af því sem verið er að skoða er rafmagnskerfið og hvort skreytingar á staðnum gætu hafa aukið útbreiðsluna. Ein tilgátan er skammhlaup í loftkælingu. Þá er einnig til skoðunar hvort útgangar hafi verið aðgengilegri. Einn þeirra var að hluta hulinn hillusamstæðu þannig að aðeins einn í einu gat farið þar út.
Bruninn er sá mannskæðasti í landinu frá því á nýársnótt 2009. Þá fórust 67 manns og 200 slösuðust í nýársfagnaði á næturklúbbi í Bangkok.