Formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis segir líklegt að frekari breytingar verði gerðar á frumvarpi um brottfararstöð milli annarrar og þriðju umræðu. Atkvæðagreiðslu um frumvarpið lauk rétt fyrir hádegi.
Ráðgert er að brottfararstöð verði á Suðurnesjum vegna nálægðar við Keflavíkurflugvöll en stöðin, sem líkt og fangelsi er lokað úrræði þótt ekki sé gerð krafa um að þeir sem þar starfa séu fangaverðir, er ætluð útlendingum sem senda á úr landi. Gagnrýni á frumvarpið hefur einkum snúið að því að til stendur að þar verði barnafjölskyldur vistaðar. Meirihlutinn hefur lagt fram breytingartillögu sem felur í sér að barnafjölskyldur verði vistaðar í aðskildu húsnæði frá einstaklingum.
Þingmenn meirihlutans auk þingmanna Sjálfstæðisflokks styðja málið en Miðflokkurinn sat hjá við atkvæðagreiðsluna en útilokaði ekki að styðja málið á síðari stigum.
Framsóknarflokkurinn sat sömuleiðis hjá þótt hann teldi brottfararstöð nauðsynlega. „Við bara getum ekki sætt okkur við það að það séu fjölskyldur með börn sett í varðhald,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir brottfararstöð lokaúrræði fyrir þann minnihlutahóp sem neitar samstarfi við íslensk stjórnvöld. Þangað eigi enginn að þurfa að fara en þeir sem það gera séu fyrst og fremst karlmenn. „Hvað börnin varðar þá verðum við að horfa á heildarmyndina og fjölskyldur. Ef Ísland ætlar að vera í þeirri stöðu að brottvísa aldrei fjölskyldum þá hefur það áhrif. Það verður það framkallar segla, áhrif og sjálfstæða hættu fyrir börn.“
Minnihlutinn lagði fram nokkrar breytingartillögur sem allar voru felldar. Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, sagði þó við atkvæðagreiðsluna að einhverjar þeirra kæmu til umfjöllunar í nefndinni milli umræða og gaf þannig í skyn að frekari breytingar verði gerðar á frumvarpinu.