Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöld eða nótt tilkynning um innbrot í kirkju. Í dagbók lögreglu segir að tilkynning hafi borist eftir að innbrotið var yfirstaðið. Málið er til rannsóknar.
Ekki fylgir sögunni í hvaða kirkju brotist var inn í en útkallið barst lögreglustöð 1 sem sinnir verkefnum í Reykjavík vestan Elliðaáa auk Seltjarnarness.
Tvær tilkynningar bárust sömu lögreglustöð um yfirstaðin innbrot í heimahúsum.
Alls rötuðu 52 mál á borð lögreglu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Fjórir voru vistaðir í fangageymslu í morgunsárið.
Tilkynning um innbrot barst einnig lögreglustöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. Þar höfðu tveir ætlað sér að stela flöskusjóði úr samkomuhúsi.
Lögreglustöð 3, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, barst tilkynning um líkamsárás við verslunarmiðstöð. Einn var handtekinn en látinn laus eftir skýrslutöku.
Í austasta hluta umdæmisins var lögreglan kölluð til aðstoðar þar sem ökumaður bíls vildi losna við farþega sem hafði sýnt af sér ógnandi hegðun.