Stjórn Brims hf. hefur samþykkt kaup á öllum hlutabréfum í Lýsi hf. fyrir 20 milljarða króna. Er það 4,7 milljörðum króna lægra verð fyrir hlutabréfin en upphaflega var samið um.
Tilkynnt var um samþykki við kauptilboði Brims þann 23. september 2025 með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brim hf. til Kauphallarinnar í kvöld.
Segir þar að endursamið hafi verið um verð og greiðslukjör í viðskiptunum sem tekur m.a. tillit til vaxtaberandi skulda.
„Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim og er miðað við gengið 85 kr. á hvern hlut í félaginu þannig að seljendur eignast í kjölfar viðskiptanna 117.647.058 hluti sem samsvarar um 6% af heildarhlutafé Brims nái félagið að nýta eigin bréf í þágu viðskiptanna. Kaupverðið verður allt greitt að fullu þegar viðskiptin verða frágengin að fengnu samþykki opinberra aðila,“ segir í tilkynningunni.
Í fyrri frétt þegar fyrst var greint frá viðskiptunum kom fram að heildarverðmæti þeirra væru 30 milljarðar króna, en inni í þeirri tölu voru vaxtaberandi skuldir upp á rúma fimm milljarða króna.
Selja hlut sinn í Melnesi og Polar Seafood
Í öðrum tilkynningum til Kauphallarinnar í kvöld, en þær eru alls fjórar talsins frá Brim, segir að Brim hf. hafi selt 43% hlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi.
Kaupandi er KG Fiskverkun ehf. á Rifi. Söluverð er 1,8 milljaður króna og greiðir kaupandi með hlutafé í Brimi hf. en félagið hefur verið í röð stærstu hluthafa í félaginu. KG Fiskverkun greiðir 20,7 milljónir hluta í Brimi að nafnvirði og miðast viðskiptin við gengið 88 kr. á hlut sem var sölugengi við lok markaða síðastliðinn föstudag.
Þá hefur Brim gengið frá samkomulagi um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S (PSD), en S-13 Holding ApS, dótturfélag Brims, hefur haldið á hlut Brims í PSD í Danmörku. Kaupandinn er grænlenska félagið Polar Seafood Greenland A/S sem er meðeigandi í félaginu. Samkomulagið er gert með fyrirvara um fjármögnun og samþykki opinberra eftirlitsaðila. Andvirði sölunnar er 925 milljónir danskra króna. Brim fjárfesti í félaginu í október 2022 og var kaupverðið 625 milljónir danskra króna.
Bjóða hluthöfum kaup á hlutabréfum
Á aðalfundi félagsins var einnig samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til kaupa á eigin bréfum. Brim býður hluthöfum að kaupa af þeim bréf að nafnvirði 70 milljónir króna. Heimildin takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir tíu prósent af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.
Fréttin var uppfærð. Í fyrri útgáfu sagði að hluthöfum væri boðið að kaupa bréf í Brimi. Rétt er að Brim býður hluthöfum að kaupa af þeim bréf.
Arctica Finance hf. hefur umsjón með viðskiptum. Aðalfundur félagsins fyrr á þessu ári veitti stjórn þess heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimildin og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.