Bresk stjórnvöld kynntu í dag reglur sem miða að því að takmarka notkun samfélagsmiðla 16 og 17 ára ungmenna.
Með tilkomu reglnanna verður lokað fyrir aðgang ungmennanna að samfélagsmiðlum á borð við Instagram og Facebook á milli miðnættis og sex á morgnana.
Í síðasta mánuði tilkynntu stjórnvöld í Bretlandi að börnum undir 16 ára yrði bannað að nota samfélagsmiðla frá og með ársbyrjun 2027.
Liz Kendall, tækniráðherra Bretlands, segir markmiðið vera að hlífa ungmennum við ávanabindandi eiginleikum samfélagsmiðla sem haft geti neikvæð áhrif á líðan þeirra. Hún segir reglurnar meðal annars eiga að hjálpa þeim að sofa betur, einbeita sér í skólanum og að verja meiri tíma með fjölskyldu og vinum.
Félagasamtök sem vinna að réttindum barna hafa að mestu tekið vel í breytingarnar. Þó hafa einhver þeirra varað við því að þær geti orðið til þess að ungmenni noti óöruggar leiðir til að komast fram hjá reglunum.
Ástralía varð á síðasta ári fyrsta ríkið til að banna samfélagsmiðlanotkun barna undir 16 ára aldri. Síðan þá hafa Sameinuðu arabísku furstadæmin, Kanada og Indónesía gripið til sambærilegra aðgerða.