Ráðamenn á Vesturlöndum hafa brugðist ókvæða við eftir að rússneskur dróni sprakk á þaki fjölbýlishúss í Galati í Rúmeníu. Tugir þurftu að yfirgefa heimili sín og kona og unglingspiltur særðust.
Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, boðaði fund í varnarráði landsins til að bregðast við sprengingunni. Hann sagði að atvikið ætti sér engin fordæmi og væri það alvarlegasta í Rúmeníu frá upphafi stríðsins í Úkraínu.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði að Rússar hefðu enn einu sinni gengið lengra en áður með því að dróni þeirra lenti á fjölbýlishúsi í Rúmeníu. „Á sama tíma og við eflum varnir okkar og fælingarmátt, sérstaklega á landamærunum í austri, ætlum við að auka þrýstinginn á Rússa.“
Fulltrúar aðildarríkja Evrópusambandsins ræða þessa dagana nýjar efnahagsþvinganir gegn Rússum. Það myndi verða 21. aðgerðapakki sambandsins frá því Rússar réðust inn í Úkraínu.
Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hét fullri samstöðu með Rúmenum. Hann sagði að skeytingarlaus framganga Rússa ógnaði öllum. Rutte ræddi við rúmenska forsetann í morgun og hét því að Atlantshafsbandalagið myndi verja hvern þumlung af landsvæði aðildarríkja bandalagsins.
Andriy Sybiga, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði að drónasprengingin í Rúmeníu staðfesti að öllum ríkjum við Svartahaf og raunar allri Evrópu stafaði ógn af árásarhneigð Rússa.