Dönsk lögregluyfirvöld biðla til foreldra þar í landi að taka ábyrgð á börnum sínum og fylgjast betur með því hvað þau taka sér fyrir hendur í kjölfar uppsveiflu unglingadrykkju í Árósum, þá sérstaklega innan veggja tívolís borgarinnar.
Danska ríkisútvarpið fjallar um málið. Lögreglan segir það gerast æ oftar að ungmenni og börn allt niður í 12 ára aldur séu sýnilega ölvuð í miðbænum og að upp komi ítrekuð tilvik þar sem hringja þurfi í foreldra vegna dauðadrukkinna unglinga.
Að sögn ríkisútvarpsins láta ungmennin ólátlega og kasta upp hér og þar um bæinn.
Framkvæmdastjóri tívolísins í Árósum, Henrik Ragborg, tekur undir hvatningu lögreglu til foreldra. Hann segir tívolíið þó ekki ætla að hækka aldurstakmarkið inn í garðinn að svo stöddu en aldurstakmarkið er 16 ár.
„Það er ekki hægt að útiloka það til lengri tíma að við munum þurfa að breyta aldurstakmarkinu,“ segir Ragborg en bætir svo við: „Við berum ábyrgð á því sem gerist innan girðingarinnar. Við getum ekki tekið ábyrgð á því hvað fólk hefur innbyrt áður en það kemur í tívolí.“