Borgarstjórn boðar frekari hagræðingaraðgerðir í Reykjavík í næsta mánuði.
„Það verða nokkuð umsvifamiklar aðgerðir sem við ætlum að kynna vel í ágúst. Það er ekki tímabært að upplýsa um hverjar þær verða, við ætlum að vanda til verka og vinna þetta vel með þeim sviðsstjórum sem málin varða,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í viðtali við fréttastofu.
Í lok júní voru lögð niður 18 störf hjá Reykjavíkurborg, þar á meðal á skrifstofu borgarstjóra. Upplýsingafulltrúum umhverfis- og skipulagssviðs, velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs var sagt upp. Tveir starfsmenn úr fyrra samskiptateymi vinna út uppsagnarfrest eða til áramóta og aðstoða sviðin við miðlun.
Stendur til að ráða starfsfólk í þessar stöður um eða eftir áramót?
„Það hefur gengið vel núna að vera með þessa tvo starfsmenn sem sinna miðlun og við munum sjá hvernig reynslan af þessu verður. Þannig við höfum ekki tekið neinar ákvarðanir um það en við ætlum að minnka þetta teymi allverulega frá því sem áður var,“ svarar Hildur.
Verkefnum sem varða samskipti hjá borginni hefur ekki verið útvistað.
„Við sjáum ekki fyrir okkur að útvista endilega samskiptamálum. Skrifstofa borgarstjóra hefur í gegnum árin, í tíð forvera minna, útvistað margvíslegum verkefnum, úttektum og öðru slíku og ég sé alveg fyrir mér að við myndum gera eitthvað slíkt. En það hafa engar slíkar ákvarðanir verið teknar og það eru engin verkefni á okkar borði sem kalla á slíkt þessa stundina.“
Hildur hefur enn ekki ráðið sér aðstoðarmann.
„Ég er að ljúka við þau mál og það verður kynnt þegar það er ljóst. En það er útlit fyrir að ég verði fyrstu 2-3 mánuði í starfi án aðstoðarmanns og það felur nú í sér ákveðna hagræðingu,“ segir borgarstjórinn.