„Við hyggjumst selja fyrirtæki í eigu borgarinnar á borð við ljósleiðarann Carbfix og malbikunarstöðina Höfða. Fyrstu skref varðandi ljósleiðarann hafa þegar verið stigin eins og komið hefur fram í fjölmiðlum,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við fréttastofu.
Hvað með sjálfa Orkuveituna?
„Nei, Orkuveitan verður ekki seld.“
Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir á að borgarsjóður verði rekinn með 16 milljarða króna afgangi á næstu fimm árum. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár og áætlun til næstu fimm ára voru kynnt í dag.
Eftir 6,6 milljarða króna halla á þessu ári, samkvæmt útkomuspá, er gert ráð fyrir 2,8 milljarða afgangi á næsta ári. Borgin hyggst hefja niðurgreiðslu skulda eftir tvö ár og hyggst styrkja getu til fjárfestinga ár frá ári. Hildur segir byggt á varfærnum áætlunum.
Metið hvort fjárfestingar aukast eða skattar lækkaðir
„Hins vegar munum við örugglega endurmeta þessar tölur þegar fram líða stundir og hvort við viljum fjárfesta í auknum mæli eða hreinlega lækka skatta.“ Niðurstaðan geti náðst verði fjármálastefnunni haldið til streitu.
Næstu verkefni hagræðingarhóps snúi að eignasölu, innkaupum og veikindum starfsmanna. Snúa eigi við skuldasöfnun síðustu ára þannig að tekjur vaxi umfram útgjöld. Rýnt sé í fasteignasafn borgarinnar og metið hvort halda skuli eignum sem hún þarf ekki að eiga. Eitt dæmi frá liðnum árum sé sala Perlunnar fyrir nokkrum árum.
„Við hyggjumst selja fyrirtæki í eigu borgarinnar á borð við ljósleiðarann Carbfix og malbikunarstöðina Höfða. Fyrstu skref varðandi ljósleiðarann hafa þegar verið stigin eins og komið hefur fram í fjölmiðlum.“
Samstarf við einkaaðila í leikskólamálum
Meirihlutinn hefur boðað samstarf við einkaaðila í leikskólamálum. „Við höfum almennt verið miklir stuðningsmenn sjálfstæðra leik- og grunnskóla, á borð við Ísaksskóla, Landakotsskóla og Hjallastefnuna, svo dæmi sé tekið.“
Stefnan sé að leikskólahúsnæði verði reist í samvinnu við einkaaðila og daggæsla í samstarfi við fyrirtæki efld. Við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal sé að rísa leikskóli byggður af einkafyrirtæki sem borgin mun leigja og reka.
Hvaða áhrif mun verðbólga hafa á fjárhagsáætlunina?
„Við byggjum forsendur áætlunarinnar á spám frá Seðlabanka, frá bönkum og mati fjármála- og áhættustýringarsviðs.“ Við síðari umræðu áætlunarinnar verði forsendurnar endurmetnar.
„Núna er byggt á því að verðbólga næsta árs verði 4 prósent sem ég tel kannski vera vanmetið. Við munum sennilega þurfa að hækka við síðari umræðu áætlunarinnar. Það mun ekki hafa teljandi áhrif á rekstrarniðurstöðuna,“ segir Hildur.
„Við eigum líka eftir að sjá hluta af hagræðingaraðgerðunum skila sér inn við síðari umræðu því þau átti sér stað skömmu fyrir áramót þegar fjárhagsáætlunin hafði verið gefin út.“
Viðhald á grunn- og leikskólum í brennidepli
Líta þurfi til kólnunar á byggingamarkaði og hvort enn varlega þurfi að fara við sölu byggingarréttar. „Þótt við teljum okkur hafa verið ansi varfærin“. Hildur segir að gert sé ráð fyrir að borgin fjárfesti fyrir 23,6 milljarða á næsta ári.
Einblínt sé á viðhald húsnæðis í grunn- og leikskólum þar sem innviðaskuldin sé gríðarlega mikil. Viðhald sé í gangi um alla borg auk þess sem viðhald og uppbygging íþróttamannvirkja sé hafin eða í farvatninu.
„Til að mynda fyrir KR og Fram. Við ætlum okkur að efla leiksvæði fyrir börn í borginni, fara í löngu tímabært viðhaldsátak á gangstéttum, við ætlum í skógræktarátak og hraða snjöllum ljósastýringum svo eitthvað sé nefnt.
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í heild sinni: