Boltamömmur í miðjumoði - Vísir

Boltamömmur í miðjumoði - Vísir

Boltamömmur í miðjumoði - Vísir

Sex þátta gamanserían Boltamömmur er hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur sem fer með eitt aðalhlutverkanna og skrifar handritið ásamt Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur, Sóla Hólm, Hafsteini Gunnari Sigurðssyni og Hannesi Þór Halldórssyni. Leikstjórar þáttanna eru Hannes Þór og Hafsteinn Gunnar og eru þeir framleiddir af Atlavík.

Fyrir utan Lilju Nótt eru helstu hlutverk seríunnar skipuð Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Þorvaldi Davíð Kristjánssyni, Hildi Völu Baldursdóttur, Önnu Svövu Knútsdóttur, Iðunni Ösp Hlynsdóttur, Ólafi Agli Egilssyni, Mikael Kaaber, Sverri Þór Sverrissyni og Aðalbjörgu Árnadóttur.

Hin nýfráskilda Diljá (Kristín Þóra) stendur á tímamótum og ákveður að sökkva sér í fótbolta dóttur sinnar. Þar er fyrir systirin Kara (Lilja Nótt) sem fær útrás fyrir brostinn fótboltadraum sinn með öskrum á hliðarlínunni. Við þetta bætist fyrrverandi eiginmaðurinn Eiríkur (Þorvaldur Davíð), fullkomni matarbloggarinn Svansí (Hildur Vala), veipandi yfirstéttarskinkan Sólveig (Anna Svava) og huggulegi yfirþjálfarinn Breki Olsen (Mikael Kaaber). Úr verður saga um leyndarmál, ástir og óðar boltamömmur.

Boltamömmur voru frumsýndar á Sjónvarpi Símans þann 10. september síðastliðinn, luku göngu sinni sex vikum síðar en eru áfram aðgengilegir á veitunni.

Leyndarmál úthverfanna

Úthverfin hafa löngum verið frjór jarðvegur fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti hvort sem það eru melódramatískar myndir Douglas Sirk frá sjötta áratugnum, sótsvartar kómedíur á borð við Heathers (1988), The Burbs (1989) og Happiness (1998) eða mysteríurnar Desperate Housewives (2004-12) og Big Little Lies (2017-19). 

Úthverfin eru yfirleitt friðsæll og öruggur staður fyrir barnafjölskyldur og góðborgara en undir sléttu og felldu yfirborðinu dvelur jafnan eitthvað myrkara: bældar þrár, mislukkuð hjónabönd og falin leyndarmál. 

Bandaríkjamenn hafa margsinnis tæklað úthverfin á skjánum.

Þættirnir Boltamömmur eiga sér stað í úthverfinu Seltjarnarnesi sem Þórbergur Þórðarson lýsti svo: „Seltjarnarnesið er lítið og lágt, lifa þar fáir og hugsa smátt. Aldrei líta þeir sumar né sól, sál þeirra‘ er blind eins og klerkur í stól.“ Seltjarnarnesið er minnsta sveitarfélag landsins að flatarmáli, hefur síðustu áratugi verið eitt af vígjum íhaldsmanna sem ríghalda í sjálfstæði sitt frá Reykjavík og þykir eftirsóttur staður til að búa á. Bærinn er því ágætlega frjór jarðvegur fyrir sjónvarpsþátt.

Boltamömmur tækla jafnframt fyrirbæri sem hefur farið vaxandi á síðustu árum hérlendis, yfirgengileg afskipti foreldra af íþróttum barna sinna sem birtast í óheilbrigðum samskiptum við þjálfara, samkeppni við aðra foreldra og óraunhæfar væntingar í garð barna sem eiga að skara fram úr. Þættirnir samþætta þetta tvennt með því að fjalla um hvernig úthverfaforeldrar fá útrás fyrir vandamál sín, gremju og bældar þrár í fótbolta barna sinna. 

Pirrandi fyrrverandi, brjáluð systir og heillandi yfirþjálfari

Áhorfendur kynnast Diljá sem mætir í upphafi seríunnar á fótboltaleik hjá dóttur sinni eftir langa fjarveru. Ástæðan er að hún er nýskilin við fyrrverandi mann sinn, Eirík, sem hafði séð um íþróttaiðkun dóttur þeirra. Diljá er í molum eftir skilnaðinn og veit ekki hvað hún á að gera við sig. Kristín Þóra, sem er vafalaust ein okkar öflugasta leikkona, fangar vel vonleysið, vandræðaleikann og óöryggið hjá miðaldra konu á kaflaskilum.

Boltamömmur er enn ein serían frá Símanum.

Læknirinn Eiríkur er töluvert brattari enda skilnaðurinn að hans frumkvæði. Samt virðist hann eiga erfitt með að sleppa takinu og mætir reglulega óbðinn á gamla heimilið til að sinna garðinum og hlúa að lyngrósinni. Þorvaldur Davíð er stórkostlegur í hlutverki Eiríks sem er smeðjulegur, peppandi og óþolandi jákvæður.

Þrátt fyrir að leikararnir standi sig bæði vel er áþreifanlega lítil kemistría eða almennilegur núningur milli hjónanna. Manni líður eins og þau séu hálfókunnug frekar en fyrrverandi hjón.

Systir Diljár, ljósmóðirin og fyrrverandi landsliðskonan Kara, er líka mætt á leikinn en þær eru algjörar andstæður. Diljá er kurteis og lítillát en Kara skapstór yfirgangsseggur með sorakjaft. Hún öskrar áfram dóttur sína frá hliðarlínunni, hreytir ónotum í mótherjana og grefur undan ungum þjálfaranum Hönnu Borg (Iðunn Ösp) sem vill að stúlkunum líði vel á vellinum. 

Kara er gift prúða flautuleikararnum Hilmi (Ólafi Egils) sem er orðinn þreyttur á hegðun eiginkonunnar. Ólafur Egils er sannfærandi í hlutverki hins jarðtengda Hilmis (fyrir utan flautuleikinn) með skemmtilegum blæbrigðum og frösum. Lára stendur sig ágætlega í hlutverki Köru en karakterinn er skrifaður svo ýktur að hann verður hálf ótrúlegur, sérstaklega því hún flakkar milli yfirgengilegs brjálæðis á vellinum og þess að vera ágætlega sjálfsmeðvituð heima fyrir.

Kara æsir sig á hliðarlínunni.

Sagan hrekkur í gang þegar Diljá er sjálfkjörin sem nýr formaður foreldrafélagsins í Gróttu og reynir að brydda upp á nýjungum á borð við hollara nesti og skemmtileg myndbönd á TikTok. Auðvitað gengur það brösuglega, foreldrarnir hafa ekki raunverulegan áhuga á að taka þátt í undirbúningnum og TikTok-ið springur framan í hana. Foreldrafundirnir bjóða oft upp á gott grín, óþægilega hreinskilni Eiríks og forréttindablindu efnaðra foreldra sem skeyta engu um að aðrir hafi ekki jafn mikið milli handanna.

Samhliða formennskunni reynir Diljá að enduruppgötva sjálfa sig sem kynveru. Þar koma við sögu bæði Breki Olsen, heillandi og sjálfumglaður yfirþjálfari Gróttu, og Svansí, fullkominn matarbloggari sem Diljá dýrkar. Á sama tíma er Kara staðráðin í að losna við þjálfara stúlknanna og beitir ýmsum brögðum til þess. Við þetta bætist þriðja fléttan um nafnlausan netníðing sem fer að senda dóttur Köru gróf skilaboð á netinu og á að halda ákveðinni spennu gegnum seríuna.

Fjölskylduvæðing, núningsleysi og slappur endir

Líkt og með flest það sem kemur úr ranni Atlavíkur eru þættirnir afar fagmannlega gerðir. Myndataka Bergsteins Björgúlfssonar er góð fyrir sinn snúð, staðarval og leikmynd skapa sannfærandi úthverfaheim og búningarnir eru hæfilega fjölbreyttir. Leikhópurinn skilar heilt yfir sterkri frammistöðu og þar standa upp úr Kristín Þóra í aðalhlutverkinu og sterku aukaleikararnir Þorvaldur Davíð, Ólafur Egils og Mikael Kaaber.

Þættirnir eru ekki leiðinlegir áhorfs og innihalda nokkra góða grínspretti. Hins vegar tekst aldrei að selja manni dramað því það er ekki tekið alla leið og grínið ekki nógu beitt til að halda restinni á floti. Þættirnir lofa góðu í byrjun með þráðum um tvöfalt líf persóna. Sérstaklega stendur þar upp úr samband Diljár við hinn sjálfumglaða Breka sem er ekki allur þar sem hann er séður.

Anna Svava, Birgitta Birgis og Aðalbjörg Árnadóttir í hlutverkum æstra boltamamma.

Fókusinn á fótbolta stelpnanna, afskipti Köru af liðinu og ýmis bolabrögð vekja hins vegar litla spennu og grínið verður eintóna eftir því sem á líður með leiðigjörnum senum af blótandi foreldrum. Þráðurinn um nafnlausa netníðinginn verður sömuleiðis fyrirsjáanlegur því það koma fáir kandídatar til greina. Þrátt fyrir að bjóða upp á töluverða möguleika og safaríka niðurstöðu er leyst úr þeim þræði á algjörlega antíklímatískan hátt.

Mikael Kaaber sýnir á sér skemmtilega hlið í þáttunum.

Á heildina litið vantar áþreifanlega spennu milli karaktera, hegðun Köru hefur litlar sem engar afleiðingar lengst af. Þegar systurnar fá loksins að kenna á því er manni nokk sama og því snúið upp í farsælan endi. Af hverju er engin spenna milli systranna? Ýjað er að því að þær hafi alla tíð att kappi og móðir þeirra (skemmtilega leikin á Facetime af kaffibrúnni Hönnu Maríu Karlsdóttur) hafi gert upp á milli þeirra. Þessi núningur skilar sér aldrei til áhorfenda þannig að þegar kemur að dramatísku uppgjöri systranna við fjölskylduarfinn í lokin veitir það enga hreinsun eða fullnægingu.

Annað sem ergir mann við áhorfið er tónn sem hefur einkennt mikið af íslensku gríni í sjónvarpi síðustu ár og mætti kalla fjölskylduvæðingu. Höfundar og framleiðendur virðast í meiri vilja ná til breiðasta mögulega markhóps svo efnið er látið henta bæði fullorðnum og börnum. Þetta er hvað skýrast í gamanþáttunum Iceguys sem hafa gengið í þrjár þáttaraðir á Sjónvarpi Símans en líka í nýlegu þáttaröðinni Brjáni á Sýn. 

Fjölskylduvæðingin felst í bitlausu aulagríni og tregðu við að taka hlutina alla leið. Í Boltamömmum hefur þessi nálgun þau áhrif að maður fær ekki kraftmikla fullorðinslega dramatík, bitastæða spennu eða beittan húmor heldur miðjumoð. Serían er fínasta fjölskylduskemmtun, eitthvað sem gamla settið getur horft á með bæði unglingunum og yngri krökkum. En miðað við hvað hugmyndin og persónurnar lofuðu miklu þá veldur hún dálitlum vonbrigðum.

Niðurstaða

Boltamömmur eru fagmannlega gerð fjölskylduskemmtun en ekki mikið meira en það. Sterkur aðalleikur Kristínar Þóru er hjartað í seríunni og skilar aukaleikararnir Þorvaldur Davíð, Ólafur Egils, Mikael Kaaber og Anna Svava góðri frammistöðu

Lykilmystería seríunnar vekur takmarkað spennu og er á endanum kauðslega afhjúpuð. Þá er tilfinnanlegur skortur á núningi, kergju og dramatík milli persóna og húmorinn ekki nógu kröftugur til að bæta upp fyrir það.

#boltamömmur #miðjumoði #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262948231d/boltamommur-i-midjumodi

📰 Aðrar fréttir

Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
📅 24.10.2026 👁️ 1
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
Það eru margar stjörnur og kunnugleg andlit í kvikmyndinni Brink of War sem er nú í sýningum í kvikmyndahúsum landsins. Eitt kunnuglegu andlitanna er ...
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
„Vestfirðir eru víðfeðmt og krefjandi starfssvæði þar sem miklar vegalengdir, erfiðar samgöngur og veðurfar gera oft og tíðum miklar og sérhæfðar kröf...
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
Í umfjöllun Bild er haft eftir lögreglumanni að mikið tjón hafi orðið á húsinu og ólíklegt sé að hægt verði að bjarga því. Brunavarnarkerfi hafi farið...
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
📅 24.10.2026 👁️ 1
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
Sagan af Dean Perryman, hreyfingunni hans og vininum Rob rataði til Heimskviða gegnum einhvern samfélagsmiðilinn. Sagan var uppbyggileg og falleg þó a...
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
Þetta segir Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni, þegar hann rifjar upp hvernig umfjöllun hans um mál Írisar Helgu Jónatansdóttur fór að hafa áh...
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
📅 24.10.2026 👁️ 1
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
Forseti Íran, Massoud Pezeshkian, fer til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í næstu viku til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Íranskur ríkismi...
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
📅 24.10.2026 👁️ 1
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
A wheel left beside the road has helped the Guardia Civil trace a driver suspected of leaving a seriously injured moped rider without assistance after...
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
„Suður í hafi er víðáttumikil og djúp lægð á leið austur og verður hún yfir Skotlandi í kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Ísland...
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
📅 24.10.2026 👁️ 1
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
The Canary Islands can look forward to sunny spells and warm coastal temperatures today, Saturday 24th October, although northern areas will remain cl...
Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir
Kristín Hulda starfar sem sálfræðingur og Stefán sem rafiðnfræðingur en þau eru bæði 31 árs og hafa verið saman í rúm tvö ár. Kristín ræddi við blaðam...
Friður ekki í augsýn í Súdan
📅 24.10.2026 👁️ 2
Friður ekki í augsýn í Súdan
Stríðið í Súdan hefur stigmagnast undanfarnar vikur og friður er ekki í augsýn.Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn nota í auknum mæli dróna í...
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
📅 24.10.2026 👁️ 2
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
Sverrir Helgason segir Jasminu Vajzović Crnac hafa flúið fjölmenninguna í Bosníu og vísar til landsins sem dæmis um að fjölmenningarstefna gangi illa....
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
📅 24.10.2026 👁️ 3
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
Mynd Erfðamál eru viðkvæm og valda iðulega deilum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
📅 24.10.2026 👁️ 4
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði L...
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
📅 24.10.2026 👁️ 3
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
Yfir 56 þúsund heimili eru rafmagnslaus í Taívan eftir að fellibylurinn Champi fór þar yfir í gær. Einn lést og yfir fimm hundruð hafa slasast af völd...
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
📅 24.10.2026 👁️ 4
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
Heilbrigðisyfirvöld í Kenía hafa tilkynnt um annað dauðsfall af völdum ebólu. Hin látna, kona á sjötugsaldri, var skyld manni sem lést af völdum ebólu...
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
📅 24.10.2026 👁️ 4
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
More than 70,000 police officers are to be deployed over fears protesters will defy restrictions on demonstrations.
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 3
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 1
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 5
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
Scotland Yard opens an inquiry after the Duchess of Sussex said she was sent a letter containing "disturbing allegations".
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
📅 24.10.2026 👁️ 4
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
Mikill eldur braust út í Arnarhreiðrinu, sumardvalarstað Adolfs Hitlers í Bæjaralandi í Þýskalandi, um klukkan níu í gærkvöld að staðartíma. Enn er ba...
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
📅 24.10.2026 👁️ 4
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
Jack Ross was contracted to do social media work for the party until earlier this year, the BBC has been told.
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
📅 24.10.2026 👁️ 5
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
An amber weather warning has been issued for much of Scotland, parts of Northern Ireland and northern England, as Storm Boelo approaches.
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
📅 24.10.2026 👁️ 4
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
Hreyfing mótmælenda á Ítalíu sem kennir sig við 17. október hefur boðað til mótmæla í átta borgum á Ítalíu í dag, meðal annars Róm og Mílanó. Stúdenta...
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
📅 24.10.2026 👁️ 4
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
The Independent MP is now in a serious but stable condition, according to the Melbourne hospital.
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
Að minnsta kosti sjö er saknað eftir að sextán hæða háhýsi hrundi til grunna í Naíróbí, höfuðborg Kenía í gær. Háhýsið er í Eastleigh-hverfinu, sem er...
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kyn...
UK to invest £100m in 'world first' AI Biosecurity Lab
📅 24.10.2026 👁️ 4
UK to invest £100m in 'world first' AI Biosecurity Lab
The chancellor will unveil AI spending aimed at shoring up the UK's defences in Wednesday's Budget.
Þetta þarf Margrét að borga fyrir að „móðga dómara“ – Reikningurinn barst kl. 18 og frestur gefinn til miðnættis
📅 24.10.2026 👁️ 4
Þetta þarf Margrét að borga fyrir að „móðga dómara“ – Reikningurinn barst kl. 18 og frestur gefinn til miðnættis
Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, var í sumar fundin sek um ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Var henni gert að gre...
How to heat your home without turning on the heating
📅 23.10.2026 👁️ 2
How to heat your home without turning on the heating
Make draught excluders from socks, leave your oven door open after cooking and opt for lots of thin layers of clothing to stay warm.
Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga - Vísir
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur sent allt að tólf þúsund þegna sína til Rússlands. Þar er þetta fólk sagt vinna við að setja saman drón...
Strictly Come Dancing's new hosts: Flat-footed or fab-u-lous?
📅 23.10.2026 👁️ 2
Strictly Come Dancing's new hosts: Flat-footed or fab-u-lous?
Josh Widdicombe, Emma Willis and Johannes Radebe have split opinion but are getting into the groove, critics say.
Are California voters about to impose 'world's first' tax on billionaires?
📅 23.10.2026 👁️ 2
Are California voters about to impose 'world's first' tax on billionaires?
Voters are about to decide if the mega-rich among them should hand over billions of dollars to pay for improvements to healthcare.
Ruins of city hall a symbol of France divided by protests
📅 23.10.2026 👁️ 2
Ruins of city hall a symbol of France divided by protests
Younger Limoges residents see the destruction of their town hall as unfortunate collateral damage in a wider movement. For others, the fire was an una...
Höfðatorgsmálið: Sagðir hafa boðið háar fjárhæðir fyrir falskar játningar og óvænt vitni vakti furðu
📅 23.10.2026 👁️ 3
Höfðatorgsmálið: Sagðir hafa boðið háar fjárhæðir fyrir falskar játningar og óvænt vitni vakti furðu
Lögreglu bárust í vor upplýsingar um að tveir sakborningar í Höfðatorgsmálinu svokallaða, þeir Kareem M. M. Abufarhah og Mohamed Sayidali Ahmed, hefðu...
Celebrity Traitors, episode eight: Series left on a knife edge after a trip to the field of screams
📅 23.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors, episode eight: Series left on a knife edge after a trip to the field of screams
A newly earned special power left one contestant with a powerful decision to make in Friday's episode.
Father who killed Oregon school shooter describes anguish over children he couldn't save
📅 23.10.2026 👁️ 4
Father who killed Oregon school shooter describes anguish over children he couldn't save
Kaylub Giamanco, has been hailed as a hero for killing a teenager who fatally shot three children and a teacher.
Father who killed Oregon school gunman describes anguish over children he couldn't save
📅 23.10.2026 👁️ 1
Father who killed Oregon school gunman describes anguish over children he couldn't save
Kaylub Giamanco, has been hailed as a hero for killing a teenager who fatally shot three children and a teacher.
„Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
„Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron - Vísir
BBC fjallar um málið. Að sögn Macron er um að ræða vendipunkt í sögu franska lýðveldisins, en þarna hafi í fyrsta skiptið verið framið handahóskennt d...
Faðir og systir Meghan Markle tjá sig um ásakanirnar - „Þetta er djöfulsins bull. Ekkert nema lygar“
📅 23.10.2026 👁️ 3
Faðir og systir Meghan Markle tjá sig um ásakanirnar - „Þetta er djöfulsins bull. Ekkert nema lygar“
Allt er nú í háalofti hjá föðurfjölskyldu hertogaynjunnar Meghan Markle, en hálfbróðir hennar segist hafa fundið mikið magn af barnaníðsefni meðal eig...
Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum - Vísir
Bild greinir frá þessu. Lögreglu grunar að um íkveikju hafi verið að ræða, en þó eru eldsupptök óljós að svo stöddu. Einn hefur verið handtekinn. Slök...
Skotárás sem markar vendipunkt í Frakklandi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Skotárás sem markar vendipunkt í Frakklandi
25 ára karlmaður lét lífið og fimm eru slasaðir eftir að maður skaut úr byssu úr bíl í nágrannabæjum Parísar í dag. Meðal fórnarlambanna er 12 ára stú...
Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi
Rétt rúm vika er í hrekkjavöku og matvöruverslanir eru víða farnar að fyllast af alls kyns varningi fyrir hátíðina. Markaðsstjóri Bónuss segir innkaup...
Why is John Travolta's old luxury jet in a small Australian town?
📅 23.10.2026 👁️ 5
Why is John Travolta's old luxury jet in a small Australian town?
The BBC goes on board Travolta’s old Boeing 707 which is being reassembled in a small coastal town.
Watch: 15,000 homes without power as Storm Austen batters Britain
📅 23.10.2026 👁️ 3
Watch: 15,000 homes without power as Storm Austen batters Britain
The first named storm of the season brought powerful gusts to Jersey, and in southern England the wild weather disrupted travel with fallen trees bloc...
Lýsir aðdragandanum áður en Trump missti stjórn á skapinu
📅 23.10.2026 👁️ 4
Lýsir aðdragandanum áður en Trump missti stjórn á skapinu
„Hvað er að þér? Ertu lasinn maður? Ég held í alvörunni að það sé eitthvað að þér,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti við Andrew Feinberg, blaðaman...
Ó­ljóst hvers vegna þeir hittust í „völundar­húsi“ bílastæða­hússins - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Ó­ljóst hvers vegna þeir hittust í „völundar­húsi“ bílastæða­hússins - Vísir
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Höfðatorgsmálinu svokallaða, sem nú hefur verið birtur. Þrír voru ákærðir í málinu og voru tveir þeir...
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli
📅 23.10.2026 👁️ 4
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli
Á morgun er fyrsti dagur vetrar og frost í veðurkortum víða um land fyrir helgina.Skíðaiðkendur á Akureyri hafa horft löngunaraugum upp í Hlíðarfjall ...
Hversu mikil tík er þessi pólitík?
📅 23.10.2026 👁️ 4
Hversu mikil tík er þessi pólitík?
Silvía Rut Ástvaldsdóttir skrifar: Það er eitt að fylgjast með því sem er að gerast í heiminum, hafa áhuga á pólitík og jafnvel blanda sér í umræðuþræ...