Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur boðað til neyðarfundar á morgun, mánudag, vegna aukinnar aðgangshörku Ísraelshers í Líbanon, að kröfu Frakka. Ísraelskar hersveitir fóru yfir hið hernaðarlega mikilvæga Litanifljót í og náðu yfirráðum yfir Beaufort-kastala eftir harða bardaga við liðsmenn Hezbollah.
Hermenn drógu ísraelska fánann þar að húni í dag. Kastalinn er frá tímum krossfaranna á tólftu öld og afar mikilvægur hernaðarlega þar sem hann gnæfir yfir Litanidalnum. Hann er í um tíu kílómetra fjarlægð frá landamærum Líbanons og Ísraels og úr turnum hans sést yfir Suður-Líbanon og norðurhluta Ísraels.
Að minnsta kosti átta voru drepin í árásum Ísraelshers á Suður-Líbanon í dag, þar af þrjár konur samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytis Líbanons.Nítján til viðbótar særðust, þar af nokkrar konur og börn. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að mikill þungi hafi færst í árásir Ísraelsmanna úr lofti og á landi. Ísraelsstjórn segir atlögunum beint að innviðum Hezbollah-hreyfingarinnar.