Til stendur að færa gömlu símstöðina, svokölluðu, á Seyðisfirði á nýja lóð í bænum í haust. Húsið hefur staðið á Búðareyri síðan 1894 en þar sem það er á skilgreindu hættusvæði eftir skriðuföllin 2020 á að færa það í heilu lagi nær miðbænum, á lóð við tjaldsvæðið.
Fyrir utan gamlan radíósendi frá loftskeytastöðinni á Seyðisfirði stendur húsið tómt og tilbúið til flutnings.
Otto Wathne, norskur athafnamaður sem stundum er kallaður faðir Seyðisfjarðar, reisti húsið fyrir sig og fjölskyldu sína. Seinna var þar fyrsta ritsímastöðin á Íslandi, svo voru þar bæjarskrifstofur og hluti af Tækniminjasafninu.
„Okkur þykir vænt um þessi hús en það er skrítið að sjá það sem eftir er af þessum hluta Búðareyrarinnar tæmast. Það eru blendnar tilfinningar þar hjá mér og að ég held mörgum öðrum,“ segir Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir safnstjóri Tækniminjasafns Austurlands.
Allt er að verða tilbúið á nýjum stað á Lónsleiru fyrir Angró, bryggjuhús sem Otto Watne lét líka reisa.
Angró var á Búðareyri en féll saman í óveðri tveimur árum eftir að það laskaðist í skriðuföllunum.
Það var þá tekið í sundur, hver spýta merkt og verðveitt og í næstu viku rís það á ný.
„Húsið, og þessi grind, verður stærsti safngripurinn. Þess vegna höfum við reynt að gera allt eins upprunarlega og hægt er, þar sem því verður við komið,“ segir Elfa Hlín.
Opna nýtt safn eftir tvö ár
Framkvæmdir við Angró, auk nýbyggingar safnsins sem á að reisa við hliðina á því, kosta um hálfan milljarð króna.
Þarna verður safnkostinum komið fyrir að nýju eftir að hafa verið að mestu í geymslu frá skriðunum.
Stefnt er að því að opna nýja sýningu í Angró. „Ef allt gengur að óskum gætum við kannski opnað eftir tvö ár.“
„Við finnum velvilja og spenning fyrir því að þetta sé að fara að gerast, það var stefnan sem við tókum þegar við ákváðum, ætlum við að halda áfram með þetta safn eða ekki, eftir skriðuföll. Það er líka mjög mikilvægt fyrir samfélagið hér að við höldum áfram, að við pökkum ekki saman og segjum, þetta er ómögulegt verkefni.“