Bláa lónið hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026. Samhliða hlaut Alfreð Gíslason handboltaþjálfari heiðursviðurkenningu fyrir mikilvægt framlag á alþjóðavettvangi. Verðlaunin voru veitt á Bessastöðum í dag.
Þetta er í 38. sinn sem verðlaunin eru veitt. Þeim er ætlað að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og heiðra fyrirtæki sem hafa skarað fram úr í alþjóðlegri sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Icelandair, Íslensk erfðagreining, Truenorth og Kerecis. Embla Medical hlaut verðlaunin í fyrra.
Fengu verðlaunin 2004
Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að Bláa lónið hljóti verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur við uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis, verðmætasköpun og þróun starfsemi á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara.
„Fyrirtækið hefur um árabil verið eitt þekktasta íslenska vörumerkið á alþjóðavettvangi og átt mikilvægan þátt í því að byggja upp ímynd Íslands sem áfangastaðar. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1992 hefur Bláa Lónið vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fjölþætt fyrirtæki þar sem ferðaþjónusta, hótel- og veitingarekstur, rannsóknir, húðvörur og heilsutengd þjónusta fara saman.“
Þetta er í annað sinn sem fyrirtækið hlýtur verðlaunin en þau féllu því í skaut 2004.
„Að Bláa Lónið hljóti verðlaunin á ný rúmum tveimur áratugum síðar er til marks um langvarandi uppbyggingu og stöðuga þróun fyrirtækisins á alþjóðlegum markaði.“
Brautryðjandi íslenskra þjálfara erlendis
Alfreð Gíslason hlýtur heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026 fyrir einstakan árangur á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handboltaþjálfara erlendis.
Alfreð var um árabil lykilmaður í íslenska landsliðinu og var valinn íþróttamaður ársins 1989. Eftir að hann lagði skóna á hilluna hófst þjálfaraferill Alfreðs, fyrst hjá uppeldisfélaginu KA. Þaðan lá leiðin til Þýskalands þar sem Alfreð hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð þjálfara.
Hann stýrði Magdeburg þegar liðið vann sinn fyrsta Þýskalandsmeistaratitil og vann þrjá Evróputitla með liðinu.
Fagmennska, leiðtogahæfni og árangur
„Síðar tók hann við Gummersbach og stýrði jafnframt íslenska landsliðinu á HM 2007 og EM 2008. Í kjölfarið tók hann við Kiel og stýrði liðinu í ellefu tímabil. Á þeim tíma varð Kiel sex sinnum Þýskalandsmeistari, vann bikarkeppnina jafn oft og Meistaradeild Evrópu tvisvar.“
Frá 2020 hefur Alfreð stýrt þýska landsliðinu. Með liðinu vann hann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum 2024 og á Evrópumótinu 2026.
„Ferill Alfreðs ber vott um einstaka fagmennsku, leiðtogahæfni og árangur. Áhrif hans verða þó ekki aðeins metin í titlum og verðlaunapeningum. Með löngum og farsælum ferli erlendis hefur hann verið brautryðjandi fyrir íslenska þjálfara og átt þátt í að opna þeim leið að stærri verkefnum hjá félagsliðum og landsliðum víða um heim.“