Björgunarsveitir á Suðurlandi voru í nótt boðaðar út til aðstoðar ferðalöngum á Mælifellssandi sem treystu sér ekki til að halda för áfram.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Tveir erlendir göngumenn voru á ferðinni og höfðu lagt upp frá Suðurlandi og ætlað Fjallabak á reiðhjólum, en leist ekki á blikuna í nótt þegar við þeim blasti mikill snjór og krapi.
Þeir höfðu þá samband í gegnum gervihnött og óskuðu aðstoðar. Í kjölfarið barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tölvupóstur frá aðstandanda annars þeirra þar sem staða þeirra var tíunduð.
Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli ásamt Stjörnunni í Skaftártungu og Kyndli á Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á Fjallabak úr sitthvorri áttinni.
Tveir bílar frá Dagrenningu komu svo að mönnunum klukkan 5 í morgun þar sem þeir höfðust við í tjaldi.
Kyndli og Stjörnunni var þá snúið við en Kyndilsfólk beið meðan Stjarnan var að komast í gegnum mestu ófærðina.
Mikill krapi hefur myndast á leiðinni og þurfti björgunarsveitarfólk að grípa til skóflunnar til að komast alla leið.
Björgunarfólk og göngumennirnir héldu svo til baka niður á Hvolsvöll, þangað sem komið var upp úr klukkan átta í morgun.