Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út klukkan hálf 6 í dag vegna karls og konu í sjálfheldu í Reynisfjöru. Fólkið hafði gengið meðfram klettum í fjörunni en ekki gætt að sér þegar tók að flæða að.
Björgunarsveitin Víkverjar í Vík í Mýrdal var kölluð út fyrst en skömmu síðar voru fleiri sveitir á Suðurlandi, frá Kirkjubæjarklaustri að Árborgarsvæðinu, boðaðar út, auk björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum.
Fólkið var staðsett með dróna og skömmu síðar var Þór kominn að Reynisfjöru ásamt léttum gúmbát sem Víkverji kom á frá Vík. Hægt var að lenda bátnum í fjörunni skammt frá fólkinu sem var leiðbeint af áhöfn Þórs að bátnum.
Fólkið var heilt á húfi og flutt aftur í Reynisfjöru.
Annað útkall skömmu síðar
Skömmu síðar barst aðstoðarbeiðni frá einstaklingi í sjálfheldu á Hafnarfjalli. Björgunarsveitir á Vesturlandi, frá Akranesi upp í Borgarfjörð, voru kallaðar út upp úr klukkan sjö.
Staðsetning benti til þess að viðkomandi væri nokkuð hátt í fjallgarðinum norðan við fjallið sjálft. Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar upp úr átta og er hún á leið að fjallinu. Manneskjan verður flutt með þyrlunni að björgunarsveitarbílum.