Hæg breytileg átt eða hafgola á landinu í dag. Stöku skúrir, einkum norðvestantil og á Suðurlandi en bjart með köflum og þurrt vestanlands. Hiti á bilinu sex til þrettán stig, hlýjast sunnanlands en víða líkur á næturfrosti.
Víða skúrir á morgun, einkum síðdegis en rigning austast á landinu. Hiti verður á bilinu sjö til fjórtán stig.