Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að hæðin suður af landinu haldi sínu striki næstu daga og því sé áfram gert ráð fyrir vestlægum áttum.
Skýjað verði á vestanverðu landinu og sums staðar dálítil rigning eða þokusúld. „Eftir hádegi kemur aðeins þurrara loft að landi og léttir víða til vestanlands. Þykknar aftur upp á Vesturlandi seint í kvöld.“
„Á morgun verður suðvestlæg átt 5-13 m/s, hvassast norðvestantil. Skýjað og dálítil rigning af og til vestantil, en annars bjart að mestu. Hiti breytist lítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á sunnudag:
Vestlæg átt, 5-10 m/s á vesturhelmingi landsins, dálítil rigning eða þokusúld með köflum og hiti 10 til 15 stig. Hægari vindar og bjart að mestu austantil með hita 16 til 23 stig.
Á mánudag:
Vestan og suðvestan 8-13 m/s og súld eða rigning með köflum, en þurrt á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast austast á landinu.
Á þriðjudag:
Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Skýjað og lítilsháttar væta framan af degi, en síðan úrkomulítið. Hiti víða 12 til 20 stig.
Á miðvikudag:
Suðvestanátt með súld eða rigningu og hita 10 til 15 stig, en þurrt um landið norðaustanvert til kvölds með hita að 20 stigum.