Bílaverkstæði á landsbyggðinni koma sífellt fleiri vegfarendum til bjargar yfir sumartímann.
„Þetta er orðið það algengt hjá okkur að við erum á vaktinni alveg fram eftir miðnætti á þessum sumartíma. Það er verið að fara í þrjú útköll núna bara fyrir hádegi, í kringum svona 70 kílómetra radíus frá verkstæðinu á Patreksfirði.“ segir Páll Heiðar Hauksson, eigandi Bílaverkstæðisins Smur & Dekk á Patreksfirði, í viðtali við fréttastofu.
Síðustu ár hafa fáir nýir bílar komið með varadekkjum. Páll segir stöðuna allt aðra í dag en áður.
„Við vorum í mjög fáum svona útköllum fyrir tíu árum síðan.“
„Þá ertu bara strand“
Nú, þegar fáir nýir bílar koma með varadekki, er orðið miklu algengara að vegfarendur komist ekki leiðar sinnar vegna skemmdra dekkja. Viðgerðasett, kvoða og dæla, dugar oft ekki til.
„Þegar dekkin höggvast í svona hvössum holum þá höggvast þau á hliðinni. Þá kemur það stórt gat á það að þú getur ekkert bjargað dekkinu. Svo verður fólk kannski ekki alveg vart við þetta og keyrir kannski hálfan kílómeter eða einhver hundruð metra á dekkinu og þá bara eyðileggst dekkið líka. Þá ertu bara strand,“ segir Páll Heiðar.
Í dag á Bílaverkstæðið Smur & Dekk dekk á felgum undir flesta bíla vegna þessa.
„Ég sendi þá bara menn af verkstæðinu með varadekk sem passar undir bílinn og fólk eltir mig á verkstæðið eða kemur daginn eftir og nær í sitt dekk og þá er ég búinn að setja nýtt á það.“
Páll telur ekki algengara að dekk springi undir rafmagnsbílum.
„Þeir eru ekkert á verri dekkjum eða neitt svoleiðis en þeir eru náttúrulega bara alveg strand af því það er enginn rafmagnsbíll með varadekk. Þeir geta aldrei bjargað sér nema með því að fá hjálp,“ segir hann.