„Vodka Red Bull, takk,“ segir fréttamaður Kveiks við barþjón á bar í miðbæ Reykjavíkur og greiðir fyrir drykkinn.
Barþjónninn nær í glas, vodka og Eilífa orku. Hellir í glas með klökum.
„Er þetta Red Bull?“ spyr fréttamaðurinn.
„Orka heitir hann, mjög svipaður. Orkudrykkur,“ svarar barþjónninn.
Hann hefur rétt fyrir sér. Bragðið er mjög svipað. Ölgerðin framleiðir drykkinn en fyrirtækið var áður með umboðið fyrir Red Bull.
Árið 2024 sleit austurríski orkudrykkjarisinn Red Bull samstarfi við Ölgerðina. Rúmu ári síðar var Ölgerðin komin með sinn eigin drykk, Eilífa orku, sem keppinauturinn segir vera með Red Bull-bragði. Nú berjast fyrirtækin um hvern bar, hverja útihátíð og hvert nemendafélag, og Red Bull, vinsælasti orkudrykkur í heimi, virðist vera að tapa.
„Ég myndi segja vægt einelti bara,“ segir Friðjón Hólmbertsson, framkvæmdastjóri heildsölunnar Steindal, sem tók við umboðinu fyrir Red Bull, um samkeppnina við Ölgerðina. Hann starfaði sjálfur hjá Ölgerðinni í 19 ár.
Kveikur fjallaði um viðskiptahætti Ölgerðarinnar í gærkvöldi. Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá fyrirtækinu á föstudaginn var vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar gegn samkeppnislögum sem banna misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Segir starfsmenn hafa hent markaðsefni
Friðjón segir að strax fyrsta mánuðinn eftir að Steindal tók við umboðinu fyrir Red Bull hafi starfsmenn Ölgerðarinnar farið í verslanir, hent markaðsefni Steindal í ruslið og fært Red Bull úr framstillingum aftur inn á lager. Steindal hafi þurft að funda með verslanakeðjunum til að stöðva þetta.
Forsvarsmenn Ölgerðarinnar neituðu Kveik um viðtal þegar eftir því var leitað. Í svari við skriflegri fyrirspurn segja þeir að markaðsefni í eigu fyrirtækisins sé alla jafna fjarlægt af sölustöðum þegar viðskiptasambandi við eiganda vörumerkisins lýkur.
Helmingur barviðskiptanna farinn
Baráttan er þó ekki hörðust í verslununum. Vodka í Red Bull er vinsæll kokteill og það er á börunum sem Steindal hefur tapað mestu. Friðjón segir að Ölgerðin hafi boðið börum mikla afslætti eða gefið þeim vöruna, og að helmingur barviðskipta Steindal hafi horfið síðan í vor.
„Við vorum að tala við tvo stærstu næturklúbbana á landinu. Þá sögðu þeir að þeir hefðu fengið greiddar milljónir fyrir að versla ekki við okkur,“ segir hann.
Forsvarsmenn Ölgerðarinnar segja, í skriflegu svari, samninga sína við viðskiptavini samkvæmt verklagi ekki útilokandi. Þeir vilji að viðskiptavinir selji frekar vörur Ölgerðarinnar en vörur samkeppnisaðila, en fyrirtækið hafi ekkert vald yfir þeim eða starfsfólki þeirra og stýri ekki vöruvali. Þá benda þeir á að Eilíf orka sé ódýrari en Red Bull.
„Eins og það væri gaman að pirra þau“
Slagurinn nær líka inn á Laugardalsvöll. Í apríl var Steindal boðið að auglýsa á kvennalandsleik Íslands og Úkraínu. Þegar Friðjón svaraði að hann vildi auglýsa Red Bull barst þetta svar frá auglýsingasölumanni KSÍ:
„Ég veit allt um það að Red Bull væri málið, en já, Ölgerðarsamningurinn blokkar aðra drykki ... eins og það væri gaman að pirra þau.“
Skák og mát á útihátíðum
Steindal hefur selt Red Bull á útihátíðir. Friðjón segir að eftir að Eilíf orka kom á markað hafi allar hátíðirnar hætt viðskiptunum, þar á meðal Þjóðhátíð, Írskir dagar, Hjarta Hafnarfjarðar og Kótelettan.
Einn skipuleggjenda Kótelettunnar skrifaði Steindal að Eilíf orka væri styrktaraðili hátíðarinnar. „Það getur verið erfitt að eiga við þessa risa eins og þú þekkir og ég er eiginlega skák og mát með það.“ Steindal bauðst til að gefa hátíðinni heilt bretti af Red Bull, en hátíðin sleit samt samstarfinu.
Nemendafélag skuldbatt sig til að versla einungis við Ölgerðina
Steindal hefur unnið með nemendafélögum háskólanna síðastliðin tvö og hálft ár. Þegar starfsmenn Steindal höfðu samband við félögin í byrjun haustannar höfðu nær öll samið við Ölgerðina.
Í samningi Ölgerðarinnar við nemendafélag í Háskóla Íslands, sem Kveikur hefur undir höndum, skuldbindur félagið sig til að „einungis bjóða upp á bjór og aðrar vörur frá Ölgerðinni á bjórkvöldum og öðrum uppákomum félagsins“ og að semja við bari og veitingahús sem eru í viðskiptum við Ölgerðina. Tekið er fram að samningurinn sé trúnaðarmál.
„Við erum úti hjá öllum nemendafélögunum, öllum,“ segir Friðjón.
Hann segist ekki vera á móti samkeppni. „Ég er til í heilbrigða samkeppni. Ég er að berjast við þau í verslunum, þar eru þessar vörur báðar en ég er útilokaður af börunum, það er ekki flókið, með frívörum eða ofsaafsláttum eða einhverju slíku. Ég hlýt að geta fengið að vera með vöruna. Það er það eina sem ég bið um.“