Leit að erlendum ferðamanni við Háafoss í Þjórsárdal er ekki hafin að nýju. Leit var frestað á miðvikudagskvöld og hafði hún þá staðið yfir í rúman sólarhring.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er leitarsvæðið hættulegt. Mikill krapi og drulla er við Háafoss og eru aðstæður krefjandi. Vísbendingar skortir til að halda leit áfram. Staðan verður metin aftur eftir helgi.
Ferðamaðurinn skilaði sér ekki á gististað fyrr í vikunni og var því haft samband við lögreglu sem kallaði eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu. Bíll sem maðurinn var á fannst í grennd við fossinn.