Það þarf gjarnan að lífga upp á augnsvæðið á morgnana, sérstaklega þegar maður vaknar stúrinn og þrútinn. Augnmaskar eru gjarnan settir undir augun í 10-15 mínútur í senn. Þeir eru notaðir til að minnka þrota og poka undir augum, veita augnsvæðinu betri raka, draga úr þreytumerkjum og fínum línum og geta virkað kælandi og róandi á húðina.
Það er mjög sniðugt að geyma augnmaska inni í ísskáp til að ná alvöru tökum á bólgnum augum.
BeautifEYE frá Pixi
Þetta er hydrogel-augnmaski með C-vítamíni, lakkrísrót og ginseng og hjálpar til við að bæta raka á augnsvæðinu og endurnæra húðina. Augnsvæðið verður bjartara og ferskara.
Fást í Skincarelab, 30 pör kosta 3.990 kr.
Le Lift Flash Eye frá Chanel
Le Lift-línan frá Chanel vinnur gegn öldrun húðarinnar og kemur hér fram í afkastamiklum augnmöskum með formúlu sem er auðguð hýalúrónsýru. Húðin virðist sléttari, stinnari og ljómameiri.
Þessir nýstárlegu plástrar eru gegnsýrðir af einstaklega ferskri formúlu og laga sig fullkomlega að lögun svæðisins undir augunum, sem veitir samstundis áhrif gegn þrota.
Inniheldur tíu pör af möskum.
Augnmaskar frá Bioeffect
Nærandi augnmaski sem er ofarlega á lista yfir bestu augnmaska sem til eru að mati Smartlands. Hýalúrónsýra og glýserín veita húðinni mikinn og djúpvirkan raka auk þess að draga úr þrota. Áferðin er gelkennd og hefur bæði kælandi og róandi áhrif.
Átta pör kosta 4.990 kr.
Augustinus Bader-augnmaski
Lúxus hydrogel-augnmaski sem veitir augnsvæðinu raka, birtir upp húðina, sléttir, dregur úr dökkum baugum, þrota og fínum línum. Formúlan er hrein, án ertandi efna og án ilmefna. Maskarnir eru gylltir að lit sem veita augunum mikinn ljóma.
Fæst í Eliru. Eitt par kostar 3.490 kr. en einnig er hægt að kaupa sex pör á 17.990 kr.
Rice Pure Jelly-augnmaski frá Thank You Farmer
Hlaupkenndir augnmaskar með hrísgrjónavatni og plöntuþykkni sem vinna saman að því að lýsa dökka bauga, draga úr þrota, mýkja húðina og gefur þér frísklegra útlit.
Mjúk gel-áferðin tryggir að plástrarnir liggi þétt að húðinni án þess að renna til. Fullkomið fyrir morgunrútínuna eða sem slökun eftir daginn.
Fæst á Beautybar og kosta 60 stykki 5.644 kr.




