Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur ásamt flokksfélögum sínum lagt fram frumvarp um að leggja Fjölmiðlanefnd niður og afnema skráningarskyldu sjálfstæðra hlaðvarpa. Þá er lagt til að óinnheimtar sektir, sem eingöngu byggjast á vanræktri skráningu hlaðvarpa, verði ekki innheimtar.
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í dag. Bergþór vekur athygli á málinu á Facebook og spyr:
„Hálf milljón í sekt fyrir að tala í hljóðnema – er ekki tímabært að staldra við?“
„Það á ekki að þurfa samþykki ríkisins til að opna munninn“
Bergþór deilir færslu Miðflokksins þar sem afskiptum ríkisins af hlaðvörpum og frjálsri fjölmiðlun er harðlega mótmælt. Yfirskrift færslunnar er: „Ríkið á ekki að vera ritstjóri“.
„Hvenær varð það hlutverk ríkisins að hafa eftirlit með því hverjir tjá sig, hvernig menn tjá sig og hvort þeir hafi fyllt út réttu eyðublöðin áður en þeir opna munninn?“ segir í færslunni.
Flokkurinn segir ekki þörf á ríkisstofnun til að meta hvaða skoðanir séu góðar, hvaða fréttamat sé rétt eða hverjir fái að taka þátt í opinberri umræðu.
„Tjáningarfrelsi er ekki leyfisskyld starfsemi,“ segir þar jafnframt.
Þórarinn sektaður um hálfa milljón
Sektin sem vísað er til var lögð á Þórarin Hjartarson, stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, hinn 26. ágúst síðastliðinn. Fjölmiðlanefnd ákvað þá að sekta hann um 500 þúsund krónur fyrir að sinna ekki skráningarskyldu hlaðvarpsins.
Þórarinn hafði mótmælt því að hlaðvarpið teldist fjölmiðill og bent á að efnið væri fyrst og fremst spjall og skoðanapistlar. Nefndin taldi starfsemina hins vegar falla undir fjölmiðlalög.
Fjölmiðlanefnd hefur síðan áréttað að ekki öll hlaðvörp séu skráningarskyld. Hvert tilvik sé metið sérstaklega og skráningunni sé meðal annars ætlað að tryggja gagnsæi um eignarhald og ábyrgð.
Ólokin skráningarmál falli niður
Samkvæmt frumvarpinu myndu ólokin mál vegna skráningar hlaðvarpa falla niður við gildistöku. Tiltekin lögbundin verkefni nefndarinnar færðust til Fjarskiptastofu. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027, verði frumvarpið samþykkt.
Miðflokkurinn segir markmiðið að setja ríkisvaldinu skýr mörk og draga úr afskiptum hins opinbera af frjálsri fjölmiðlun.
„Það á ekki að þurfa samþykki ríkisins til að opna munninn.“