Bergþór Bjarnason tekur við starfi sveitarstjóra í Norðurþingi frá og með 15. júní. Fram kemur í frétt Vikublaðsins að samkomulag hafi náðst á milli nýs meirihluta sveitarstjórnar og Bergþórs, sem gegnt hefur starfi fjármálastjóra undanfarin ár ásamt því að vera staðgengill sveitarstjóra.
Samningur um ráðningu Bergþórs verður undirritaður að loknum fyrsta sveitarstjórnarfundi nýrrar sveitarstjórnar í næstu viku.
Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti skipa meirihluta sveitarstjórnar í Norðurþingi. Málefnasamningur flokkanna fjögurra var undirritaður í upphafi mánaðar.