Talning atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið fer fram í Laugardalshöll í kvöld.
Kjörstöðum í Reykjavík var lokað klukkan 22 og hófst talning að kjörfundi loknum. Talningin fer fram fyrir opnum tjöldum og býður Reykjavíkurborg upp á beint streymi frá talningarstaðnum.
Sérstakt streymi er frá talningu atkvæða í Reykjavíkurkjördæmi norður og annað frá talningu í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Reykjavíkurkjördæmi norður
Reykjavíkurkjördæmi suður