Michelin Guide Nordic 2026 er nú hafin í Tívolí í Kaupmannahöfn, þar sem nýjar Michelin-stjörnur Norðurlanda eru kynntar við hátíðlega athöfn. Bein útsending frá viðburðinum er aðgengileg hér í fréttinni.
Í fyrri umfjöllun mbl.is var farið yfir sögu Michelin-handbókarinnar, andrúmsloftið í aðdragandanum og þær spurningar sem helst brenna á vörum íslenskra mataráhugamanna. Stóra spurningin er hvort Ísland eignist í fyrsta sinn veitingastað með tvær Michelin-stjörnur. Þá beinist athyglin einnig að því hvort Hosiló bætist í hóp stjörnustaða og hvort Ylja og North veki athygli Michelin í ár.