Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu.“ Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.
Mikil spenna er fyrir landsþinginu en formaður Eflingar hefur sakað formann VR um að ætla að sölsa undir sig ASÍ með tillögu um fækkun varaforseta. Tómas Arnar Þorláksson fréttamaður verður á þinginu í beinni útsendingu á Vísi og mun grípa helstu leikendur í viðtöl þegar tíðindi berast.
Fylgjast má með útsendingu Vísis hér fyrir neðan. Neðar í fréttinni má skoða streymi frá ASÍ.
Meðal ræðumanna á málþinginu eru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði flytja þau fjarerindi. Rætt verður um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.
Dagskrá |
|||||||||||
|