Málþingið hefst klukkan 15 í dag í hátíðarsal Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og stendur til klukkan 17. Hægt verður að horfa á það í streymi að neðan.
Ungmenni sem hafa fengið ýmis konar stuðning í grunnskóla standa oft frammi fyrir því að erfiðara reynist að fá sambærilegan stuðning eftir að þau hefja nám í framhaldsskóla.
Á meðal dagskrárliða eru reynslusögur nemenda, þar sem hægt verður að fá innsýn í hvernig kerfin virka í raun og veru.
Þátttakendur:
- Arndís Guðmundsdóttir deildarstjóri sérnámsbrautar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
- Reynslusögur nemenda
- Hrönn Stefánsdóttir, uppeldis og menntunarfræðingur og formaður Gigtarfélag Íslands.
- Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir prófessor á menntavísindasviði HÍ
- Ellen Óskarsdóttir barnahjúkrunarfræðingur og móðir langveikrar stúlku
- Björgvin Már Karlsson nemandi í Hringsjá
- Svanbjörg Sigmarsdóttir sviðsstjóri endurhæfingarsviðs TR