BBC fréttamaðurinn Matt Chorley hefur beðist opinberlega afsökunar eftir að hafa farið rangt með ummæli Nigel Farage í umræðu um morðið á háskólanemanum Henry Nowak.
Málið snýst um orð sem Farage lét falla í myndbandi sem hann birti á þriðjudag þar sem hann sagði að almenningur ætti að bregðast við morðinu með „hreinni, kaldri reiði“ („pure cold rage“).
Í viðtali við Kemi Badenoch, leiðtoga breska Íhaldsflokksins, í þættinum Newsnight á BBC sagði Chorley hins vegar ítrekað að Farage hefði talað um „hvíta, kalda reiði“ („white cold rage“).
Reform UK flokkur Farage gagnrýndi ummælin harðlega og sagði að með því hefði verið gefið í skyn að Farage væri að vísa til kynþáttar, þrátt fyrir að ekkert slíkt kæmi fram í upprunalegum orðum hans.
Viðurkennir mistök
Chorley birti afsökunarbeiðni á samfélagsmiðlinum X á miðvikudag.
„Ég skulda Nigel Farage afsökunarbeiðni,“ skrifaði hann.
Hann sagði að um misskilning af sinni hálfu hefði verið að ræða og að hann hefði einfaldlega munað tilvitnunina rangt.
„Þetta voru mistök af minni hálfu. Ég fór rangt með orðalagið. Það breytti ekki innihaldi viðtalsins en ég hefði átt að fara rétt með tilvitnunina. Ég bið Nigel Farage afsökunar á þessu.“
Samkvæmt BBC fór Chorley þrisvar sinnum rangt með tilvitnunina í viðtalinu.
BBC fjarlægði þáttinn
BBC hefur einnig beðið Farage afsökunar í beinni útsendingu og birt formlega leiðréttingu þar sem fram kemur að rangt hafi verið haft eftir honum. Þátturinn hefur einnig verið fjarlægður af öllum veitum BBC.
Farage sagði á X að lögfræðingar hans hefðu sent BBC bréf þar sem krafist væri opinberrar afsökunarbeiðni í útsendingu og rannsóknar á því hvernig mistökin urðu.
„Nú er nóg komið,“ skrifaði hann.
Í bréfi frá Reform UK segir að mistökin hafi gjörbreytt merkingu ummælanna.
„Þetta breytir gagnrýni á meðferð yfirvalda í eitthvað sem lítur út eins og ákall byggt á kynþætti,“ segir meðal annars í bréfinu.