Bar­áttan um varaforsetana: Valdabrölt eða sam­særis­kenningar? - Vísir

Bar­áttan um varaforsetana: Valdabrölt eða sam­særis­kenningar? - Vísir

Bar­áttan um varaforsetana: Valdabrölt eða sam­særis­kenningar? - Vísir

Þingið hefst á morgun og fer fram á Hilton Reykjavík. Meðal þess sem greidd verða atkvæði um er tillaga miðstjórnar ASÍ um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur og í einn. Þá verða greidd atkvæði um nýjan forseta ASÍ og nýja varaforseta. Formaður Eflingar hefur farið mikinn í aðdraganda þingsins en bæði formaður Eflingar og VR bjóða sig fram til fyrsta varaforseta. Formaður Eflingar meðal annars sakað formann VR um að ætla að sölsa undir sig ASÍ vegna tillögunnar um fækkun forseta. Báðir formenn skrifa í dag færslur um landsþingið á morgun.

Hafi óttast að deilur um forsetaembættin myndu taka yfir þingið

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar rifjar upp aðdraganda deilunnar um fækkun varaforseta í Facebook færslu sinni. Hún segir að á fundi í miðstjórn ASÍ í sumar hafi hún sagt að stjórn Eflingar hefði áhyggjur af stöðunni sem kæmi upp ef varaforsetum yrði fækkað.

„Ég óskaði eftir því að fært yrði til bókar að ég og stjórn Eflingar værum mjög ósáttar við niðurstöðuna og að við óttuðumst að deilur um fjölda varaforseta myndu taka yfir þingið. Var það gert eins og sjá má í umræddri fundargerð,“ skrifar Sólveig Anna.

Hún hafi gefið kost á sér í embætti fyrsta varaforseta og stillt upp af félögum með beina aðild að sambandinu. Sólveig Anna segir að Halla Gunnarsdóttir formaður VR hafi tilkynnt að hún gæfi kost á sér í embætti varaforseta en að ekki skipti máli hvert af embættunum væri um að ræða. Nú hafi það breyst, Halla hafi tilkynnt að hún bjóði sig fram sem fyrsta varaforseta.

„Staðan er því sú að meðlimur í VR, Arnaldur Grétarsson, býður sig fram með stuðningi formanns VR til forseta ASÍ, formaður VR býður sig fram í embætti fyrsta varaforseta, og talar jafnframt fyrir því að varaforsetum verði fækkað úr þremur í einn. Með þessu reynir forysta VR að tryggja að formaður Eflingar, langstærsta félags verka og láglaunafólks á Íslandi með 28.000 meðlimi, hafi um fátt annað að ræða en að draga sig í hlé á vettvangi sambandsins. Ég sagði um daginn að formaður VR reyndi nú að sölsa undir sig ASÍ. Fólk hefur reynt að láta eins og það sé hugarburður í mér. Svo er ekki – það er bláköld og augljós staðreynd.“

Núverandi fyrirkomulag sé þvert á móti ólýðræðisleg

Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist í færslu á Facebook ekki vita hversu mikinn áhuga alþýða manna hafi á fjölda varaforseta Alþýðusambandsins, hún haldi að fjöldi þeirra snerti líf almenns launafólks lítið en þar sem umræðan sé farin af stað hafi henni þótt rétt að leggja orð í belg.

„Í gegnum söguna hefur einn varaforseti dugað sambandinu ágætlega en sem viðleitni til að leysa úr ágreiningi um titla og völd hefur þeim verið fjölgað og hafa sl. sex ár verið þrír. Hugmyndin með því var að þeir kæmu frá ólíkum starfsgreinum (verslunarfólk, verkafólk, iðnaðarmenn) og mynduðu einhvers konar forsetateymi sem fundaði sérstaklega og legði línurnar.“

Lögum ASÍ samkvæmt eigi ábyrgðin á daglegu starfi sambandsins heima í miðstjórn, ekki í litlu teymi varaforseta. Í miðstjórn komi saman fulltrúar allra landssambandanna sem myndi ASÍ og félaga með beina aðild.

„Þess vegna er ótrúlega undarlegt að lesa samsæriskenningar um að fækkun varaforseta gæti leitt til þess að sjónarmið einhverra hópa innan ASÍ verði jaðarsett. Þvert á móti þá er hugmyndin um lítið forsetateymi ólýðræðisleg og til þess fallin að fækka þeim röddum sem nauðsynlegt er að hafi áhrif á alla stefnumótun og daglegan rekstur ASÍ. Að vísu hefur röddum verkafólks fækkað innan miðstjórnar eftir að Efling gekk úr SGS, en svo virðist sem félagið þiggi eingöngu eitt sæti af tveimur mögulegum við borðið og leggur ekki til neina varamenn. Hvers vegna svo er veit ég ekki.“

Þá segir Halla heildarkostnað af launum varaforseta vera fjármagn sem mætti vel verja til annarra verkefna. Til samanburðar sé verið að leggja til hækkun skatta á aðildarfélögin til að standa undir eflingu vinnustaðaeftirlits.

„Sú hækkun gæti verið helmingi minni ef varaforsetum væri fækkað. Starf varaforseta felst að stofninum til í því að mæta á tvo Teams fundi í mánuði og fara yfir dagskrá miðstjórnar áður en hún er send út. Fundirnir taka iðulega um fimmtán mínútur en fyrir starfið eru engu að síður greiddar í ríflega 240 þúsund krónur á mánuði. (Hjá VR hefur stjórn tekið ákvörðun um að slíkar greiðslur skuli teljast hluti af launakjörum formanns og eru dregnar frá heildarlaunum).“

Dragi framboðið til baka verði fulltrúi VR forseti

Halla segir að meðal annars verði greidd atkvæði á fimmtudag um það hvort fækka eigi varaforsetum úr þremur í einn. Á föstudag verði svo kosið um forseta og fyrsta til þriðja varaforseta, eftir atvikum. Þingið þurfi fyrst og fremst að kjósa varaforseta sem fólk treysti fyrir hlutverkinu, það er að segja að gegna í forföllum forseta.

„Þetta er ekki staða sem á að veita einhver völd eða áhrif umfram einmitt það kjarnahlutverk. Hvað sjálfa mig varðar þá hef ég gefið kost á mér til embættis fyrsta varaforseta en það fer hins vegar allt eftir afdrifum lagabreytinga um fjölda varaforseta og niðurstöðu í kosningu til forseta hvort ég læt slag standa í þeim efnum. Ég er til dæmis þeirrar skoðunar að komi forseti úr röðum VR-inga, líkt og annar frambjóðandinn gerir, og tillaga um einn varaforseta verður samþykkt sé betra að viðkomandi komi úr röðum annarra hópa sambandsins. Þá mun ég draga framboð mitt til baka.“

Fréttin uppfærð 16:24. 

Sólveig Anna hefur brugðist við skrifum Höllu í nýrri færslu á Facebook. Þar svarar hún rökum Höllu að núverandi fyrirkomulag sé ólýðræðislegt.

„Þetta er frumleg nálgun, svo vægt sé til orða tekið. Formaður VR varar við litlu forsetateymi sem ólýðræðislegu fyrirbæri sem fækki nauðsynlegum röddum. Samt minnkar tillagan sem hún styður teymið úr fjórum manneskjum í tvær. Ef lítið teymi er ólýðræðislegt, hvernig getur enn minna teymi verið lýðræðislegra? Formaður VR hefur lýst því að hlutverk varaforseta sé ekki pólitískt heldur felist það aðeins í því að leysa forseta af í forföllum. En ef svo er, hvers vegna talar hún þá fyrir fækkun? Ef embættið hefur engin pólitísk áhrif getur fjöldi varaforseta varla skipt neinu máli heldur.“

Sólveig Anna segir að ef fjöldinn skipti hinsvegar máli, líkt og ákafinn við að fækka þeim bendi eindregið til, þá séu varaforsetarnir valdastöður.

„Fækkun embættanna færir þá þetta vald augljóslega á færri hendur. Hvort sem er dregur fækkun embættanna úr fjölbreytni radda í forystunni. Á það erum við í Eflingu að benda, og það kallar formaður VR samsæriskenningu,“ skrifar Sólveig Anna.

„Staðan er semsagt þessi: Að mati formanns og stjórnar VR er lítið forsetateymi ólýðræðislegt. Til að bregðast við því skal minnka teymið enn frekar, þannig að varaforsetinn verði aðeins einn. Og sá eini varaforseti á að vera formaður VR, sem hefur gefið kost á sér í embættið. Með þessu á lýðræðið að vera tryggt. The mind boggles, hefði ég mögulega sagt fyrir nokkrum árum. En ég er orðin svo lífsreynd að varla nokkuð kemur mér á óvart lengur, og síst af öllu rökfimi þeirra sem eru að klifra upp metorðastigann. Ég hef lært að í því samhengi má flest, ef ekki allt.“

#baráttan #eða #samsæriskenningar #valdabrölt #varaforsetana


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262947832d/barattan-um-varaforsetana-valdabrolt-eda-samsaeriskenningar-

📰 Aðrar fréttir

Fékk bætur eftir að eiginkonan skar af honum skaufann – Ætlar að nota féð til að giftast henni aftur
📅 13.10.2026 👁️ 1
Fékk bætur eftir að eiginkonan skar af honum skaufann – Ætlar að nota féð til að giftast henni aftur
Brasilísk kona skar typpið af eiginmanni sínum eftir að hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr. Hjónin skildu og hann fékk fébætur. Nú ætlar...
Hring­veginum lokað frá Markar­fljóti til Ör­æfa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Hring­veginum lokað frá Markar­fljóti til Ör­æfa - Vísir
Lokunin gildir frá Heimalandi við Markarfljót og að Fagurhólsmýri í Öræfum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að um svokallaða mjúka lokun sé að ræða o...
Lokun á Hringvegi vegna óveðurs og sjór gæti gengið á land
📅 13.10.2026 👁️ 0
Lokun á Hringvegi vegna óveðurs og sjór gæti gengið á land
Hringveginum verður lokað að hluta milli klukkan 5:00 og 9:00 í fyrramálið á Suður- og Suðausturlandi vegna óveðurs.Á vef Vegagerðarinnar segir að ann...
Dánaraðstoð orðin 4% af öllum dauðsföllum í Belgíu
📅 13.10.2026 👁️ 0
Dánaraðstoð orðin 4% af öllum dauðsföllum í Belgíu
Um 4% dauðsfalla í Belgíu í fyrra voru með dánaraðstoð. Hlutfallið hefur tvöfaldast frá árinu 2020, að því er fram kemur í skýrslu stofnunar um mat og...
Hlýtur 40 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Tupac Shakur
📅 13.10.2026 👁️ 0
Hlýtur 40 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Tupac Shakur
Duane „Keffe D“ Davis hefur hlotið að minnsta kosti 40 ára fangelsisdóm fyrir að hafa fyrirskipað morðið á rapparanum Tupac Shakur. Davis, sem er 63 á...
Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
Kennararnir Rakel Sigurgeirsdóttir og Sigurður Borghildarson voru í viðtali í Bítinu í morgun þar sem þau fóru yfir málið. Þar kom fram að starfsmennt...
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
📅 13.10.2026 👁️ 1
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
Forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarr...
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
Um 200 þúsund manns tóku þátt í mótmælum til stuðnings bættum kjörum framhaldsskólanema í Frakklandi í dag. Harka tók að færast í leikinn síðdegis og ...
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
📅 13.10.2026 👁️ 2
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
Norðanstormur skellur á landinu á morgun og verða gular og appelsínugular viðvaranir víða í gildi. Rætt var við Birtu Líf Kristinsdóttur, veðurfræðing...
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
📅 13.10.2026 👁️ 2
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
William Chapman was attacked by the tiger after he entered its pen at Yorkshire Wildlife Park.
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
📅 13.10.2026 👁️ 2
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum síðustu vikur og mánuði við verkið, sem er umfangsmikið og vandasamt enda er þakið oft nefnt sem eitt af frægustu...
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
📅 13.10.2026 👁️ 2
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
Prosecutors say the device, wrapped in toilet paper, was found inserted in a USB port on the back of a TV in an executive conference room.
Leó páfi með lungnakrabbamein
📅 13.10.2026 👁️ 2
Leó páfi með lungnakrabbamein
Leó páfi fjórtándi gekkst undir skurðaðgerð á lunga fyrr í dag til að fjarlægja krabbamein. Meinið hafði fundist við reglubundna læknisskoðun, samkvæm...
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
Borunum til gullleitar í Þormóðsdal er lokið í bili. Fyrirtækið Aurania Resources segir rannsóknirnar vekja vonir.DV greindi frá því þann 9. september...
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
Fyrr í dag var greint frá því að aðgerðin hefði gengið að óskum en þá hafði ekki verið upplýst hvort hnútur sem fannst í lunga páfa væri illkynja. Í y...
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
📅 13.10.2026 👁️ 1
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er gagnrýnin á ummæli Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra sem hann lét falla í Spursmálum Morgun...
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fyrirspurn Vísis um lengingu Vikunnar og auglýsingahlé í þættinum. Stefán segir auglýsi...
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
📅 13.10.2026 👁️ 1
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa. Kókaíninnflutningur til álfunnar hefur margfaldas...
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
Skotið var á Shakur úr bíl í Las Vegas 7. september 1996. Hann var 25 ára og einn áhrifamesti rappari heims þegar hann lést. Kviðdómur sakfelldi Davis...
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
Samkvæmt tilkynningu frá HHÍ gaf móðir konunnar henni miðann þegar hún var barn og hún hefur átt hann alla tíð síðan. Hún hafði raunar sagt móður sinn...
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
„Ég held að allir aðilar sem komu að þessum kjarasamningum geti verið stoltir af niðurstöðunni. Forsvarsmenn Breiðfylkingarinnar eru með stór mál inni...
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
Eva Dögg er 42 ára listrænn stjórnandi, hönnuður og frumkvöðull og stofnaði fyrirtækin L’Atelier Alba, The Face Ritual Method og RVK Ritual. Stefán Da...
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
📅 13.10.2026 👁️ 3
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður hefur greint frá kerfisbundnu ofbeldi og misnotkun kvenna í viðkvæmri stöðu, t.d. með andlegar skerðingar, af há...
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
Forsætisráðherra segist sjá gríðarlega spennandi tækifæri fyrir áfangastaðinn Ísland í fyrirhuguðu innviða- og náttúrugjaldi. Hún segir fleiri staði e...
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
📅 13.10.2026 👁️ 3
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri fimleikafélagsins Bjarkar, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta tilkynnti hann foreldrum fyrir stuttu í gegnum a...
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
Páfi, sem er 71 árs, gekkst undir aðgerðina á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í dag. Hnúturinn fannst við reglulega læknisskoðun. „Aðgerðinni lauk farsælle...
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
📅 13.10.2026 👁️ 2
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
Bandaríska stuttþáttaröðin Band of Brothers kom út árið 2001, gerð af Steven Spielberg og Tom Hanks eftir samnefndri bók sagnfræðingsins Stephen E. Am...
Skuldar ekkert - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Skuldar ekkert - Vísir
„Það passar,“ segir Tryggvi Másson framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu. Flokkurinn hafi verið með veð í húsnæðinu Valhöll að Háaleiti...
Brýning Rubios
📅 13.10.2026 👁️ 3
Brýning Rubios
Brýning Rubios Fréttin13. október 2026Björn Bjarnason, Erlent, StjórnmálLeave a Comment Marco Rubio við Akrópólis. Björn Bjarnason skrifar: Í stað þes...
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Ölgerðinni á föstudaginn, vegna gruns um að fyrirtækið hefði gerst sekt um misnotkun á markaðsráðandi stöð...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
Þeir sem halda að eitthvert fullveldisafsal felist í því að innleiða bókun 35 virðast misskilja málið
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
📅 13.10.2026 👁️ 2
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
Greining Teya byggir á kortaviðskiptum í átta hafnarbæjum síðastliðið sumar. Á Ísafirði voru að jafnaði 328 erlend greiðslukort notuð á dögum þegar sk...
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi Fréttin13. október 2026ErlentLeave a Comment Úkraínskur nemandi hefur v...
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
📅 13.10.2026 👁️ 2
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
Guilfoyle the allegations of improper conduct are "false" and being ambassador was the "honour of a lifetime".
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
📅 13.10.2026 👁️ 3
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
The sentence marks an end to the mystery around Tupac's cold case, which has intrigued hip-hop fans for nearly 30 years.
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
Von er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suður...
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
Eftir úttekt um endurnýjun björgunarskipa Landsbjargar vorið 2019 var tveimur árum síðar gert samkomulag við ríkið um helmings fjármögnun nýrra björgu...
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
📅 13.10.2026 👁️ 3
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
Student protesters in France have told the BBC's James Waterhouse that they will continue to take action until change has been made. The protests have...
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
📅 13.10.2026 👁️ 3
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
Breska ríkisútvarpið BBC er sakað um ritskoðun eftir að slagorð til stuðnings transkonum var afmáð með stafrænni myndvinnslu af bol sem leikkonan Beth...
Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir
Umræddir frambjóðendur eru þau Thomas H. Kean Jr. og Miller-Meeks en þau sitja bæði í fulltrúadeildinni fyrir kjósendur í New Jersy annars vegar og Io...
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
Að því er fram kemur í dagbók lögreglu náðist maðurinn skömmu síðar og reyndist þá vera réttindalaus og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sömuleiðis ...
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
📅 13.10.2026 👁️ 4
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
Landhelgisgæsla Íslands varar við að búast megi við mjög hárri sjávarstöðu í óveðrinu á morgun vegna lágs loftþrýstings. Þetta geti valdið flóðum.„Mjö...
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
📅 13.10.2026 👁️ 3
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
Dómur í hinu svokallaða Reykholtsmáli hefur nú verið birtur og kennir þar margra grasa. Málið, sem hefur ítarlega verið fjallað um í fjölmiðlum, varða...
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
📅 13.10.2026 👁️ 3
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
The school has faced an uproar over how it handled assault allegations brought by a woman known as Jane Doe.
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
📅 13.10.2026 👁️ 4
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
Stjórnendur í Cornell-háskóla hafa ákveðið að aflýsa öllum viðburðum og skemmtunum í húsakynnum bræðralaga í skólanum út skólaárið sem lýkur næsta vor...
Enn versnar spáin með nýjum við­vörunum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Enn versnar spáin með nýjum við­vörunum - Vísir
Teitur Arason veðurfræðingur segir að útlit sé fyrir meiri veðurhæð á Suðurlandi og við Breiðafjörð en fyrri spár gáfu til kynna. „Annars búumst við v...
Active Tourism in the Canary Islands - things to do on the islands all year round
📅 13.10.2026 👁️ 3
Active Tourism in the Canary Islands - things to do on the islands all year round
The Canary Islands have long since shed their image as a purely beach destination. This Atlantic archipelago of eight islands offers dozens of active ...
Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysi
📅 13.10.2026 👁️ 4
Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysi
Andri Már Mortensen Birgisson, sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykholtsmálinu, var höfuðpaur og aðalskipuleggjandi þess. Þetta k...
Bandero leitar skjóls í Reykja­vík - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Bandero leitar skjóls í Reykja­vík - Vísir
Gunnar Tryggvason hafnstjóri Faxaflóahafna segir að gamla höfnin í Reykjavík sé mun skjólbetri en Akranesshöfn í áttunum sem spáð er. Eins og fyrr seg...
Air Atlanta vinnur á­hættu­mat vegna á­rása Húta - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Air Atlanta vinnur á­hættu­mat vegna á­rása Húta - Vísir
Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu í borgarastyrjöld í nágrannaríkinu Jemen en undanfarna daga hafa þeir fært sig upp á skaftið með röð eldf...