Bannið nær til allra landa í Evrópusambandinu og þeirra sem eru hluti af EES. Það felur í sér að afurðir nautgripa, hrossa, alifugla, fiskeldisdýra auk hunangs sem kemur frá Brasilíu mega ekki verða innfluttar hér til lands.
„Geti yfirvöld í Brasilíu sýnt fram á með fullnægjandi hætti að notkun sýklalyfja við framleiðslu dýraafurða sé í samræmi við löggjöf ESB, getur sambandið afturkallað bannið,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.
Þessar breytingar hafa ekki áhrif á sendingar sem voru gefnar út fyrir 3. september. Slíkar afurðir má flytja inn samkvæmt fyrra fyrirkomulagi.