Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu.
Sjá nánar: Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný
Landhelgisgæslan fylgist nú með ferðum skipsins líkt og öðrum skipum sem er siglt innan hafsvæðis Íslands. Bandero gefur upp staðsetningu sína.
Skipverjar eru um borð til að taka þátt í Aðgerð 86 sem hefur það að markmiði að stöðva alfarið hvalveiðar Hvals hf. Nafn aðgerðarinnar er vísun í árið 1986 þegar tveimur íslenskum hvalveiðiskipum var sökkt í Reykjavíkurhöfn.
Bandero var fyrst siglt inn í íslenska efnahagslögsögu í lok júní með það í huga að nálgast hvalveiðiskip Hvals. Landhelgisgæslan elti lengi vel skipið á Þór, varðskipi gæslunnar. Skipverjarnir sögðust stefna á að sökkva skipunum og væru tilbúnir að fórna handtöku til þess að stöðva hvalveiðar.
Þann 10. júlí var skipinu siglt til Írlands vegna veikinda um borð en hafa nú snúið aftur.