Einn lést í umferðarslysi á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells í gærkvöldi.
Lögreglu barst tilkynning um slys þar sem bifreið hafði hafnað utan vegar og oltið laust fyrir klukkan 23 í gærkvöld. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook.
Tveir voru í bílnum. Annar var án lífsmarka þegar að var komið og endurlífgunartilraunir reyndust árangurslausar. Hinn var fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.