Innbrotafaraldur geisar í miðborg Reykjavíkur. Frá mánaðamótum hafa yfir sextíu innbrot verið tilkynnt á varðsvæði lögreglustöðvar eitt. Lögreglan telur þau ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. Þrír hafa verið handteknir vegna gruns um að eiga aðild að hluta þessara innbrota en einn þeirra var handtekinn í morgun.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur boðaði til samráðsfundar í gær með lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, íbúasamtökum í miðborginni, Samtökum verslunar og þjónustu og rekstraraðilum á svæðinu.
Að sögn Hildar var á fundinum rædd tölfræði lögreglunnar um innbrotafaraldurinn og til hvaða aðgerða mætti grípa. Þar á meðal var rætt um aukið myndavélaeftirlit í miðborginni.
„Við rekum í samstarfi við lögregluna og neyðarlínuna öryggismyndavélakerfi í miðborginni sem við vitum að hefur þegar í gegnum árin verið lykilþátttakandi í að upplýsa um innbrot og ofbeldisbrot. Við erum að uppfæra þá samninga og það eftirlit má bæta,“ segir Hildur.
Íbúar ekki í hættu
Þá verður í næstu viku haldinn fundur með íbúum og fyrirtækjaeigendum í borginni um hvernig má koma í veg fyrir innbrot á heimilum og fyrirtækjum. Fundurinn verður auglýstur fyrir helgi.
Hildur tekur fram að það sé ekkert í tölfræði lögreglunnar sem bendir til þess að íbúar séu í hættu. Innbrotin tengjast líklegast ekki skipulagðri glæpastarfsemi heldur telur lögreglan frekar að að verki séu einstaklingar sem eru að fjármagna næsta neysluskammt.
„Þess vegna er ég að benda á að þetta er ekki hættulegur hópur heldur hópur sem hefur lent í einhverri ógæfu í lífinu og er í tækifærisinnbrotum. Það talar auðvitað inn á velferðarþjónustuna hjá okkur og hvernig við þjónustum þennan hóp betur svo að hann þurfi ekki að leiðast inn á þessa braut.“