Bandarísk stjórnvöld kynntu í kvöld nýjar refsiaðgerðir gegn kúbverskum stjórnmálamönnum og fjölskyldum þeirra.
Aðgerðirnar beinast meðal annars að syni og barnabarni Rauls Castro, fyrrverandi forseta Kúbu. Hann gegnir ekki lengur opinberum embættum en þykir engu að síður afar valdamikill á bak við tjöldin.
Refsiaðgerðum er einnig beint gegn Miguel Diaz-Canel forseta Kúbu og nánustu fjölskyldu hans.
Vill að Kúba sé „vel rekið land sem geti brauðfætt íbúa sína“
Viðskiptabann hefur verið milli ríkjanna frá 1962. Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur þó bætt í að undanförnu. Olíuinnflutningur til Kúbu stöðvaðist í janúar með tilheyrandi orkukrísu.
Stjórnvöld í Washington telja að kommúnistastjórnin á Kúbu ógni öryggi Bandaríkjamanna. Eftir að Nicolas Maduro var steypt af stóli í Venesúela í janúar hefur Trump ítrekað sagt að Kúba sé næst í röðinni.
„Við sjáum um íslamska lýðveldið Íran og um leið og það er búið, þá gerum við stutt stopp á leiðinni til baka,“ sagði Trump í dag og vísaði þar til Kúbu. Hann vísaði því á bug að refsiaðgerðirnar væru til þess ætlaðar að flýta fyrir algjöru hruni í efnahagslífi Kúbu, að því er segir í frétt CBS.
Hann óski þess að Kúba sé „vel rekið land sem geti brauðfætt íbúa sína“ eins og hann orðaði það í samtali við blaðamenn. „Þjóðin sveltur, býr yfir engri orku, engri olíu, á engan pening, hún á ekkert.“
Rafmagnslaust upp undir 22 klukkustundir á dag
Innflutningur olíu til Kúbu frá Venesúela stöðvaðist alveg í janúar þegar Bandaríkin réðust inn í Venesúela og tóku Nicolás Maduro höndum. Síðan þá hefur skort olíu til að keyra rafala sem sjá íbúum fyrir rafmagni. Þar hefur því verið rafmagnslaust allt upp í 22 klukkustundir á dag.
Flutningar til landsins liggja nánast með öllu niðri og matar- og lyfjabirgðir eru að klárast. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna á Kúbu segja stöðuna grafalvarlega. Til viðbótar við skort á nauðsynjum sé upphaf fellibyljatímabilsins í Karíbahafinu handan við hornið.