Bandarísk stjórnvöld kynntu í kvöld nýjar refsiaðgerðir sem beinast gegn kúbönskum stjórnmálamönnum og fjölskyldum þeirra.
Meðal þeirra sem aðgerðirnar beinast gegn eru sonur og barnabarn Raul Castro, fyrrverandi forseta landsins. Hann gegnir ekki lengur opinberum embættum en þykir engu að síður afar valdamikill á bak við tjöldin.
Refsiaðgerðirnar beinast einnig gegn Miguel Diaz-Canel, forseta Kúbu, og nánustu fjölskyldu hans.
Vill að Kúba sé „vel rekið land sem geti brauðfætt íbúa sína“
Viðskiptabann milli ríkjanna hefur verið í gildi síðan 1962. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þó bætt í að undanförnu. Síðan í janúar hefur olíuinnflutningur til Kúbu stöðvast með tilheyrandi orkukrísu.
Stjórnvöld í Washington vilja meina að kommúnistastjórnin á Kúbu ógni öryggi Bandaríkjamanna. Eftir að Nicolas Maduro var steypt af stóli í Venesúela í janúar hefur Trump ítrekað sagt Kúbu vera næsta í röðinni.
„Við sjáum um Íslamska lýðveldið Íran og um leið og það er búið, þá gerum við stutt stopp á leiðinni til baka,“ sagði Trump í dag og vísaði þar til Kúbu. Hann vísaði því á bug að refsiaðgerðirnar væru til þess ætlaðar að hraða fyrir algjöru hruni á efnahagslífi Kúbu, að því er segir í frétt CBS.
Hann óski þess að Kúba sé „vel rekið land sem geti brauðfætt íbúa sína“ eins og hann orðaði það í samtali við blaðamenn. „Þjóðin sveltur, býr yfir engri orku, engri olíu, á engan pening, hún á ekkert.“
Rafmagnslaust upp undir 22 klukkustundir á dag
Innflutningur á olíu til Kúbu frá Venesúela stöðvaðist alveg í janúar eftir að Bandaríkin réðust inn í Venesúela og handtóku Nicolás Maduro. Síðan þá hefur olíu skort til að keyra rafala sem sjá íbúum fyrir rafmagni. Þar hefur því verið rafmagnslaust allt upp í 22 klukkustundir á dag.
Flutningar til landsins liggja nánast með öllu niðri. Matar- og lyfjabirgðir eru því að klárast í landinu. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna á Kúbu segja stöðuna grafalvarlega. Til viðbótar við skort á nauðsynjum sé upphaf fellibyljatímabilsins í Karíbahafinu handan við hornið.