Bókabúðir bæði á Írlandi og Norður-Írlandi hafa aukið sölu sína á bókum rithöfundarins Sally Rooney. Bækurnar voru teknar úr sölu á Bretlandseyjum eftir að útgefandi hennar, Faber, sagði ekki hægt að greiða Rooney sölutekjur af bókunum.
Það er vegna þess að hún sagðist ætla að láta ágóðann renna til samtakanna Palestine Action, sem eru á bannlista breskra stjórnvalda samkvæmt skilgreiningu hryðjuverkalaga. Á sama lista eru til að mynda Hezbollah-hreyfingin í Líbanon og palestínsku vígasamtökin Hamas.
Bækur Rooney hafa notið fádæma velgengni en meðal þekktra bóka sem hún hefur skrifað eru Conversations with Friends og Normal People, sem báðar hafa verið þýddar á íslensku og heita Okkar á milli og Eins og fólk er flest. Samnefndir þættir byggðir á síðarnefndu bókinni fóru sigurför um heiminn þegar þeir voru fyrst sýndir árið 2020.
Sala sums staðar aukist tífalt
Jenni Doherty, eigandi bókabúðarinnar Little Acorns í Derry á Norður-Írlandi, segir við AFP-fréttaveituna að hún hafi getað haldið áfram að selja metsölubækur Rooney með því að fá þær í gegnum birgja handan landamæranna, á Írlandi, heimalandi Rooney.
Þar eru samtökin Palestine Action ekki bönnuð og því eru engar kvaðir á því hvort greiða megi Rooney höfundarlaun.
Takmarkað framboð bókanna hefur laðað fjölda nýrra viðskiptavina í bókabúð Doherty og hún hefur fengið margar fyrirspurnir frá öðrum breskum bóksölum sem leita nýrra birgja. „Bannfærð bók er bók sem selst,“ segir Doherty í samtali við AFP. „Hún vekur athygli alveg upp á nýtt.“
Hinum megin við landamærin, á Írlandi, hefur eftirspurnin líka aukist en sumar bókabúðir hafa sagt frá því að sala á bókum Rooney hafi aukist tífalt síðan fréttir bárust af sölubanninu.