Kerfi hafi verið uppfærð og samræmd og birtist nú sömu upplýsingar í strætóskýlum, Klapp-appinu, á vef Strætó og í kortum Google og Apple. Þá taki komuspár líka mið af fleiri þáttum sem hafa áhrif á aksturinn en áður, svo sem hjáleiðum. Farþegar fái því nú nákvæmari og áreiðanlegri upplýsingar um hvenær næsti vagn kemur.
Segir að aðgerðin sé liður í því að bæta stöðugt þjónustu við farþega Strætó. Á síðustu misserum hafi ýmsar nýjungar verið innleiddar, til að mynda snjallgreiðslulausnir.