Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs KR í fótbolta, hefur framlengt samning sinn við félagið.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Óskar Hrafn, sem er 52 ára gamall, skrifaði undir fjögurra ára samning í Vesturbænum.
Fyrri samningur hans átti að renna út eftir keppnistímabilið 2027 en nýi samningurinn gildir út keppnistímabilið 2030.
„Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem KR hefur sýnt mér og að framlengja samninginn var auðveldasta ákvörðunin sem ég hef tekið á mínum starfsferli,“ sagði Óskar meðal annars í tilefni undirskriftarinnar.
Óskar Hrafn tók við þjálfun KR í ágúst árið 2024 og er liðið sem stendur í öðru sæti Bestu deildarinnar með 22 stig.