Nú styttist óðfluga í heimsmeistaramótið í knattspyrnu og því hefur Árni Torfason ljósmyndari verið að vinna í vefsíðu sem sýnir á hvaða sjónvarpsstöðvum leikirnir á mótinu verða sýndir víðs vegar í heiminum.
Í samtali við mbl.is segist Árni hafa fengið hugmyndina vegna þess að hann verður sjálfur staddur erlendis meðan á keppni stendur.
„Ég hugsaði í fyrstu að þetta væri sniðug hugmynd svo að fólk á Íslandi gæti séð hvort leikurinn yrði á RÚV eða RÚV 2, svo datt mér í hug að bæta við t.d. Svíþjóð, af því ég væri að fara þangað, og hafa þetta þannig að þetta gæti virkað fyrir fólk erlendis.“
„Ég hugsaði að þetta gæti verið ágæt lausn“
Vefsíðan heitir worldcup.sportzone.is og eins og áður segir sýnir hún á hvaða sjónvarpsstöð leikirnir fram undan á HM verða sýndir í beinni.
„Hvort leikirnir verði sýndir á RÚV eða RÚV 2 liggur einhvers staðar djúpt á vef þeirra, þannig ég hugsaði að þetta gæti verið ágæt lausn,“ segir Árni.
Hann segir að hægt verði að skoða hvern riðil fyrir sig og sjá alla leikina sem geri þetta einfalt og þægilegt fyrir fólk.
„Ég er að vinna í því að bæta inn fleiri löndum, þannig að ef fólk er statt einhvers staðar í útlöndum og er að velta því fyrir sér hvar t.d. leikur Mexíkó á móti Suður-Kóreu er sýndur getur það fundið hann á síðunni. Það eru um 200 rétthafar að sýna leikina um allan heim þannig að vonandi verður flest komið inn,“ segir Árni að lokum.