Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi mældist 5% í júní, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar.
Fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára var um 9200 en 11.500 samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum.
Atvinnuleysi jókst um 1,7 prósentustig samanborið við sama mánuð á síðasta ári. Hlutfall starfandi lækkaði um 5,4 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 4,1 prósentustig.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,6 prósentustig á milli maí og júní 2026. Atvinnuþátttaka dróst saman um 2,4 prósentustig og hlutfall starfandi lækkaði um 1,9 prósentustig.
Óárstíðarleiðrétt atvinnuleysi var 3,9%.
Hlutfall starfandi var 77,9% í júní sem samsvarar tæplega 228.700 einstaklingum.
Atvinnuþátttaka var 81% sem þýðir að um 237.900 manns voru á vinnumarkaði. Árstíðaleiðrétt var atvinnuþátttaka 74,4% í júní og atvinnuþátttaka 78,4 prósent.
Hlutfall starfandi var 77,9%, sem samsvarar tæplega 228.700 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81% eða um 237.900 manns á vinnumarkaði.
Vinnumálastofnun skráði 4% atvinnuleysi 10. júlí.