Aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir að ástæða sé til að hafa áhyggjur af auknu atvinnuleysi. Hún hefur litla trú á að skerðing atvinnuleysistrygginga hafi jákvæð áhrif.
Atvinnuleysi mældist fimm prósent í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar í júní. Það er rúmum tveimur prósentustigum meira en það var á sama tíma í fyrra, þegar það var tvö komma átta prósent.
„Horfur á vinnumarkaði hafa núna undanfarið ár farið mjög versnandi og atvinnuástandið hefur í raun og veru ekki verið verra síðan í heimsfaraldrinum,“ segir Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
Sambandið hefur sérstakar áhyggjur af atvinnuleysi í hópi 16 til 24 ára.
„Atvinnuleysi í þeim hópi er að mælast nú hjá Hagstofunni 12% og það er veruleg aukning frá sama tíma í fyrra þegar atvinnuleysi var rétt ríflega 5% í þessum hópi. Til að setja það í samhengi þá jafngildir þetta því að að einhvers staðar í kringum 4.500 ungmenni séu án atvinnu,“ segir Henný.
Atvinnuleysi eykst í nær öllum starfsgreinum
Henný segir að aukið langtímaatvinnuleysi sé einnig áhyggjuefni og að atvinnulausum fjölgi í öllum starfsgreinum, fyrir utan sjávarútveg og fiskvinnslu, sem sé augljóst merki um kólnun.
Hún segir miður að einu sýnilegu viðbrögð stjórnvalda séu skerðing á atvinnuleysistryggingum.
„Sem við lögðumst mjög gegn og teljum í raun og veru mjög varhugaverða við þessar aðstæður. Þetta hafa verið verið mjög illa ígrundaðar breytingar að okkar mati og þær eru kannski frekar til þess fallnar að að vinna gegn virkni á vinnumarkaði,“ segir Henný.
Hún segir sambandið hafa viljað að stjórnvöld horfðu frekar til virkra vinnumarkaðsaðgerða til að styðja við viðkvæma hópa.
„Ef stjórnvöld sáu þörf á því að fara í sértaka endurskoðun á atvinnuleysistryggingakerfinu þá hefðum við nú gjarnan viljað sjá að það hefði frekar verið horft til þess að nútímavæða kerfið til þess að mæta ýmsum nýjum áskorunum sem launafólk stendur frammi fyrir á vinnumarkaði,“ segir Henný og nefnir meðal annars áskoranir vegna tækniþróunar.
„Það hefði verið svona eðlilegra að horfa til þess að að styrkja þessi kerfi er frekar en að veikja við þessar aðstæður.“